Enn ein hringekja vegatollaumræðu Runólfur Ólafsson skrifar 20. mars 2026 15:32 Heitasta kartaflan í stjórnmálum hér á landi er enn og aftur komin til umræðu: vegatollar á helstu leiðum á höfuðborgarsvæðinu. Í frumvarpi fjármálaráðherra um nýtt innviðafélag er ráðgert að byrjað verði að innheimta slíka vegatolla eftir fjögur ár, þ.e. 2030. Þeir eiga að skila 13 milljörðum króna á ári til að fjármagna samgöngusáttmálann. Stjórnmálamenn vilja samt lítið kannast við vegatollana og henda þessari heitu kartöflu á milli sín. Í viðtali við Vísi sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra að ekki stæði til að innheimta vegatollana nema af nýjum framkvæmdum. Engu að síður eru í frumvarpi hans ítarlega útfærð áform um vegatolla á höfuðborgarsvæðinu á núverandi umferðaræðum. Annar stjórnmálamaður, Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur mótmælt þessum áformuðu vegatollum kröftuglega. Hann hefur engu að síður verið ötull talsmaður vegatolla á Alþingi, ásamt Jóni Gunnarssyni. Vilhjálmur segir að hugmyndir hans um vegatolla hafi gengið út á að á móti þeim lækki önnur gjöld á umferðina. Slík sé ekki raunin í nýju frumvarpi fjármálaráðherra. Þá segist Vilhjálmur óttast að farið verði að innheimta vegtolla án þess að það sé vegna framkvæmda í vegakerfinu. Vegatollar eru meingallaðir FÍB hefur margoft bent á gallana við vegatolla. Engan skildi því furða hvað stjórnmálamenn eiga erfitt með að tala fyrir þeim. FÍB hefur bent á að vegatollar séu dýr og ómarkviss leið til að hafa tekjur af umferð eða stýra henni. Kostnaður við vegatolla felst m.a. í dýrum tækjabúnaði, hugbúnaði, tengingum, innheimtukostnaði, viðhaldi, endurnýjun og almennum rekstri. Aðrar leiðir til að hafa tekjur af umferð eru mun hagkvæmari, þ.e. eldsneytisgjöld og kílómetragjald. Þá mismuna vegatollar vegfarendum eftir búsetu og ferðatilgangi og leggjast þyngst á þá sem hafa minna aflögu. Ávinningur af búsetu á ódýrari svæðum fer fyrir lítið. Vegatollar raska umferðarflæði Vegatollar á helstu leiðir á höfuðborgarsvæðinu koma sér illa fyrir fólk sem hefur ekki val um ferðatíma eða leiðir. Fyrirhugaðir vegatollar verða þannig fyrst og fremst skattur á íbúa utan miðborgarkjarna Reykjavíkur. Fáheyrt er að ætla að innheimta sérstaka vegtolla til að byggja upp samgöngumannvirki á höfuðborgarsvæðinu. Umferðin skilar nú þegar nægum tekjum til að standa undir þessum útgjöldum. Vegatollar raska umferðarflæðinu og beina umferð þangað sem hún á ekki erindi. Höfundur er framkvæmdastjóri FÍB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Runólfur Ólafsson Veggjöld Bílar Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar