Viðskipti innlent

Hækka stýrivexti

Árni Sæberg skrifar
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira.

Þannig höfðu til að mynda greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spáð vaxtahækkun og greininga- og matsfyrirtækið Reitun spáð 25 punkta hækkun. Greiningardeild Arion banka hafði aftur á móti spáð óbreyttum vöxtum.

Greint er frá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í yfirlýsingu sem birt var klukkan 8:30.

„Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50 prósent. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur.

Flestir hagvísar bera nú vitni um hægari efnahagsumsvif. Þrátt fyrir það hefur verðbólga aukist á ný og mælist nú 5,2 prósent annan mánuðinn í röð. Að nokkru leyti má rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá bættust við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs. Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka.

Mikil hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa hefur nú þegar leitt til frekari hækkunar á verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði. Dragist átökin á langinn er hætta á að verðhækkanir breiðist út, ekki síst þar sem verðbólguvæntingar eru eins háar og raun ber vitni. Aukin hætta er því á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar á undirliggjandi verðbólguþrýsting.

Af þessum sökum telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans á ný. Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingunni.

Vefútsending klukkan 9:30

Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar fer fram klukkan 9:30 en þar munu þau Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og sitja fyrir svörum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×