Ég myndi ýta á græna takkann, og segja já! Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar 17. mars 2026 15:32 Á dagskrá Alþingis í dag er 3ja umræða um Almannatryggingar (launavísitala), 155. mál, lagafrumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra. Nú er mál að linni, ég vona að frumvarpið gangi í gegn og verði að lögum, loksins. Við sem erum metin með örorku og þau sem eru á endurhæfingalífeyri hafa mátt sitja undir afar óvæginni orðræðu minnihlutans á Alþingi, þá hafa ýmis öfl í samfélagi okkar s.s. SA, sum verkalýðsfélög og læknafélagið setið á rökstólum með hagfræðingum og varað við að lífeyrir yrði tengdur launavísitölu. Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu á þau sem þurfa að lifa á örorkulífeyrir, það SKAL verða þeirra að axla ábyrgðina á að efnahagur Íslands fari á annan endann. Þingmenn hafa leyft sér orðræðu sem á ekki bara að niðurlægja fólk heldur særa það, orðræðu sem ætluð er til að smætta manneskjur sem veikst hafa, sem slasast hafa eða fæðst með skerðingar. Framkoma þingfólks, stjórnenda fyrirtækja og samtaka, verkalýðsfélaga, lækna, hagfræðinga og annarra sem tekið hafa þátt, vitnar best um fordóma, skilningsleysi og mannfyrirlitningu þeirra sem þar hafa talað. Ung vinkona mín er öryrki, hún er veik, og með ýmsar skerðingar vegna sinna veikinda. Hún sendi mér greiðsluseðil sinn sem sýndi að hún fékk 278.000 kr. útborgaðar frá TR, hún á nær engan rétt í lífeyrissjóðum enda verið lítið á vinnumarkaði. Hún borgar yfir 200.000 kr. í leigu, og hún er raunverulegt dæmi. Það er ljóst að hennar framfærsla er of lág. Hér hefur orðræðan snúist um að öryrkjar vilji ekki vera á vinnumarkaði að þau hafi það betra á örorkulífeyri, og að hvatinn sé því enginn fyrir fárveikt og fatlað fólk að vinna. Svo hefur varnagli verið sleginn og því slengt fram að ef þau hafi vinnu þá gætu þau verið með hærra útborgað en vinnufélaginn, sem væri ósanngjarnt. Flestir vita að öryrkjar borga meira í lyf, sérfræðinga og annað heilbrigðistengt en almenningur og að veikindi eða skerðingar af öðrum toga er bara drulluerfitt að díla við í daglegu lífi, alla daga. Öfundsvert? Ég held ekki. Hagfræðingar hafa skáldað upp ýmis dæmi sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum. Raunveruleikinn er nefnilega sá að þau sem geta unnið eitthvað reyna að fá vinnu og reyna að vera á vinnumarkaði. Mörg geta hins vegar alls ekki unnið og önnur fá engin atvinnutilboð. Þetta fólk, sem beitt hefur svipunni á hóp öryrkja, þarf að átta sig á, að þau sem eru með örorkumat eru það vegna þess að þau hafa skerta starfsorku og getu til að sinna vinnu eða yfirleitt hverju öðru sem fólk almennt sinnir í daglegu lífi. Hræðsluáróður er undarlegt vopn sem sum hafa kosið að beita á hópa fólks í að því er virðst þeim tilgangi að halda fólki í fátækt og vonleysi og skömm. Ég vona svo sannarlega að frumvarpið verði að lögum í dag, að fólk á lífeyrir fái sömu hækkanir á lífeyrinn eins og annað fólk fær á sín laun, enda er samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks orðinn að lögum og þar er þetta dregið fram. Ég vil þakka ríkisstjórninni og Ingu Sæland fyrir að koma þessu máli á koppinn. En ríkið er sá aðili sem hefur með kjör öryrkja og annarra lífeyristaka að gera. Verkalýðsfélög verja ekki þann hóp sem einu sinni var þeirra og borgaði stéttarfélagsgjöld og fleira. Það er nefnilega þannig að fæstir eru á lágmarkslaunum út lífið og flest geta aukið við sig vinnu til að bæta sinn hag. Það geta öryrkjar ekki, af augljósum ástæðum sem allir ættu auðvitað að sjá. Ég trúi því að efnahagur Íslands og íslenskur almenningur og jafnvel auðmenn lifi það af að lífeyrir verði tengdur við launavísitölu. Ég trúi því að íslenskt efnahagslíf verði jafn stöðugt eða óstöðugt og áður, en umfram allt þá trúi ég að þetta sé jöfnunaraðgerð sem bæti hag lífeyristaka. Ekki veitir af! Höfundur er formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður Harpa Sigurðardóttir Félagsmál Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar