Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. mars 2026 15:44 Sumarbúðir fyrir stúlkur eru haldnar í Vindáshlíð á hverju sumri. Upprifjun á umhugsunarverðum leikjum sem stúlkur sem sóttu sumarbúðirnar Vindáshlíð tóku þátt í hafa vakið athygli í netheimum. Leikirnir, sem annars vegar kenndu stúlkunum hvernig það væri að vera flóttamaður og hins vegar um syndir djöfulsins, eru ekki lengur á dagskrá sumarbúðanna. Framkvæmdastjóri Vindáshlíðar segir þá taktlausa.
Rebekka Rut Marinósdóttir deildi myndbandi á TikTok þar sem hún rifjar upp tvo leiki sem hún fór í þegar hún dvaldi í sumarbúðunum Vindáshlíð á vegum KFUM og KFUK. „Er einhver hérna inni sem fór í KFUM og KFUF sumarbúðirnar í Vindáshlíð eða Kaldárseli og fór í hermannabúðirnar eða lífsgönguna?“ spurði Rebekka. Viðbrögðin létu ekki standa hjá sér og hafa tugir skrifað athugasemdir við myndbandið þar sem þeir annaðhvort minnast þess að hafa tekið þátt eða furða sig á lýsingum Rebekku. Sumar eru jákvæðar en aðrir eru hneykslaðir á að leikirnir hafi verið á dagskrá. Hermannabúðirnar gengur út á að stúlkurnar sem sóttu sumarbúðirnar voru vaktar að nóttu til og þær látnar hlaupa út í skóg. Starfsfólk sumarbúðanna klæddi sig upp sem hermenn og elti stúlkurnar með vasaljós. Ef starfsfólkið, eða hermennirnir, náðu þeim voru þær færðar á ákveðinn stað sem átti að tákna herbúðir. „Svo þegar leikurinn var búinn var sagt; nú veist þú hvernig það er að vera flóttamaður,“ segir Rebekka. Hún segir í myndbandinu að hún hafi farið rétt eftir aldamót. Undirrituð getur staðfest að hermannaleikurinn var enn á dagskrá árið 2013, þá um miðjan dag. Leiddu hönd Guðs í gegnum skóginn Rebekka minnist einnig svokallaðrar lífsgöngu. „Það var bundið fyrir augun á þér og þú áttir að elta reipið um skóginn og reipið var hönd Guðs. Svo var pikkað í öxlina á þér og sagt nei komdu með mér, ég veit um styttri leið. Það átti að vera djöfullinn og ég man að þeir sem fóru stuttu leiðina þeir fengu eitthvað samtal, þú hefðir átta að treysta hönd Guðs,“ segir hún. „Nú horfi ég til baka og er bara, hvað var þetta?“ @cleftiequeen where are my KFUM and KFUK girlies at?🤡 ♬ original sound - Rebekka Rut🦋 Í samtali við fréttastofu segist Rebekka hafa íhugað lengi að birta slíkt myndband þar sem margar á hennar aldri könnuðust við frásögnina. Meðal þeirra sem hafa skrifað athugasemd við myndbandið og minnast hermannaleiksins eru áhrifavaldarnir Birta Líf og Lovísa Falsdóttir. Rebekka segist hafa fengið spurningar um hvort að sumarbúðirnar væru enn svona. Ísland sé svo lítið land að svona frásagnir berist út um allt. Yfir tuttugu þúsund manns hafa horft á myndbandið. „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ „Ég get fullvissað þig um að það er langt síðan við hættum með þennan hermannaleik og þessa lífsgöngu,“ segir Helga Sóley Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Vindáshlíðar, í samtali við fréttastofu. „Það var mjög taktlaust að vera með barnastarf og einhvern svona leik og kannski eitthvað sem fólk gerði sér ekki grein fyrir.“ Hún hafi ekki verið framkvæmdastjóri Vindáshlíðar þegar ákvörðunin um að afnema leikina var tekin. „Það er ekki farið í þennan leik, þetta er ekki boðskapurinn sem við viljum vera með, að tala um einhverjar freistingar og djöfulinn,“ segir hún. „Þetta er ekki eitthvað sem við stöndum fyrir í dag.“ Helga Sóley leggur áherslu á að það sé mjög gaman í sumarbúðunum í dag og að passað sé vel upp á öll börn sem komi til þeirra. „Það eru sem betur fer breyttir tímar.“
Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar TikTok Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira