„Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 07:39 Aðalheiður segir fólk við það að vakna og þau verði aðstoðuð við að komast leiðar sinnar. Vísir/Bjarni og Vilhelm Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, segir vel hafa gengið í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í Reykjaskóla í Hrútafirði og á Blönduósi í gær. Um 220 leituðu skjóls í stöðvunum.
Fjöldahjálparmiðstöðvar voru opnaðar beggja vegna lokunarpóstanna við Holtavörðuheiði í gær og beindi lögreglan því til fólks að allir skyldu halda sig heima vegna veðursins. Fjöldahjálparstöðvarnar voru annarsvegar í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi og hins vegar í Reykjaskóla í Hrútafirði. „Það var mjög mikið af fólki og það voru opnaðar tvær fjöldahjálparstöðvar. Það voru um rúmlega 150 manns á Blönduósi og um 70 í Reykjaskóla í Hrútafirði. Þetta var mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti. Við fengum mikla aðstoð og það var góð samvinna,“ segir Aðalheiður og að íbúar hafi til dæmis lánað bedda og teppi fyrir fólk að sofa með. Hún segir allt kapp hafa verið lagt á að koma öllum í hús og fólk fari að vakna núna. Þá komi í ljós hvenær þau komist áfram ferðar sinnar. Flestir sem gistu í Blönduósi hafi komist sjálfir þangað á sínum bílum en einhverjir þeirra sem leituðu skjóls í Hrútafirði hafi mögulega fest bíla sína eða þurft að skilja þá eftir og þau verði þá aðstoðuð í dag.
Dalabyggð Húnaþing vestra Félagasamtök Björgunarsveitir Tengdar fréttir Bætir í norðaustanáttina að nýju Alldjúp lægð mjakast nú austur skammt suðaustur af landinu og í kvöld kemur svo lægð sunnan úr hafi og sameinast við hina fyrri suðaustur af landinu og bætir þá í norðaustanáttina að nýju. 16. mars 2026 07:15 Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lokað þjóðveginum frá Blöndósi suður yfir Holtavörðuheiði og biðlar til vegfarenda að halda sig heima. Fjöldahjálparstöð verði opnuð í íþróttahúsinu á Blönduósi. Ólíklegt þykir að vegirnir opni aftur í kvöld. 15. mars 2026 19:44 Mest lesið „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Fleiri fréttir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Sjá meira
Bætir í norðaustanáttina að nýju Alldjúp lægð mjakast nú austur skammt suðaustur af landinu og í kvöld kemur svo lægð sunnan úr hafi og sameinast við hina fyrri suðaustur af landinu og bætir þá í norðaustanáttina að nýju. 16. mars 2026 07:15
Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lokað þjóðveginum frá Blöndósi suður yfir Holtavörðuheiði og biðlar til vegfarenda að halda sig heima. Fjöldahjálparstöð verði opnuð í íþróttahúsinu á Blönduósi. Ólíklegt þykir að vegirnir opni aftur í kvöld. 15. mars 2026 19:44