Innlent

Á annan tug ferða­langa fastir á Holta­vörðu­heiði

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá aðgerðum í Djúpinu í dag.
Frá aðgerðum í Djúpinu í dag. Landsbjörg

Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tug ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafa fest bíla sína í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Ferðalangar í að minnsta kosti tveimur bílum hafi til að mynda verið í vandræðum á Klettshálsi. Fóru björgunarsveitirnar Heimamenn frá Reykhólum og Lómfell á Brjánslæk á staðinn til að aðstoða þá.

Þar að auki voru þó nokkur verkefni á Súðavík fyrir björgunarsveitina Kofra, bæði innan bæjar en líka inn í Djúpi, að sögn Landsbjargar.

Veður er sagt fara enn versnandi og nú á suðvesturhorninu. Biðlar Landsbjörg því til þeirra sem þurfa að vera á ferðinni að fara ekki vanbúin af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×