Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Sindri Sverrisson skrifar 10. mars 2026 12:03 Ekki fá allir leikmenn Mount Pleasant að taka þátt í leiknum við LA Galaxy á morgun en þeir geta spilað heimaleikinn eftir rúma viku. Instagram/@mountpleasantfa Jamaíska fótboltaliðið Mount Pleasant verður án tíu leikmanna þegar það mætir LA Galaxy í Kaliforníu á morgun því þeim var neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Vandamálið ætti að hafa minni áhrif á HM í sumar.
Lið Mount Pleasant vann Karíbabikarinn í fyrra og mætir nú LA Galaxy í 16-liða úrslitum Meistarabikarsins (e. Champions Cup) sem er keppni á vegum knattspyrnusambands Norður- og Mið-Ameríku (CONCACAF). Það þýðir að lið Mount Pleasant þarf að ferðast til Bandaríkjanna og er leikurinn við LA Galaxy í Kaliforníu á morgun. Þjálfari jamaíska liðsins hefur þurft að kalla til leikmenn úr unglingaakademíunni því tíu leikmenn máttu ekki koma inn í Bandaríkin. Í leikmannahópnum eru meðal annars sjö leikmenn frá karabísku eyjunni Haítí, samkvæmt frétt BBC, en Donald Trump Bandaríkjaforseti setti ferðabann á Haítí-búa í júní í fyrra. „Við viljum ekki bara mæta til leiks. Við viljum geta keppt. En við fáum ekki tækifæri til að sýna okkar besta,“ sagði Paul Christie, yfirmaður íþróttamála hjá Mount Pleasant, við Jamaica Observer. Ákveðnar undantekningar vegna HM Bandaríkin hafa lofað að gera undantekningu á ferðabanninu vegna stórviðburða á borð við HM í sumar. Haítí er með á mótinu og spilar í riðli í Bandaríkjunum, með Marokkó, Skotlandi og Brasilíu. Ferðabannið mun ekki ná til leikmanna og þjálfara Haítí en þessi undanþága nær aftur á móti ekki til stuðningsmanna Haítí sem þar af leiðandi koma til með að missa af mótinu. Haítí hefur aðeins einu sinni verið með á HM og það var fyrir rúmlega hálfri öld, eða árið 1974.
Fótbolti Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira