Eldhaf í Glasgow Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2026 08:04 Bygginging sem hýsti umrædda lestarstöð var reist árið 1851 en er að stórum hluta hrunin. Getty/Jeff J Mitchell Umfangsmikill eldur kviknaði í fornfrægri fjögurra hæða byggingu við hlið mikilvægustu lestarstöðvarinnar í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi. Þar logaði lengi mikið eldhaf stjórnlaust og er byggingin að miklum hluta hrunin. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað.
Eldurinn mun hafa kviknað í veipsjoppu við hlið lestarstöðvarinnar og barst fyrsta tilkynningin um eldinn til slökkviliðsins um klukkan 15:45 í gær. Eldurinn er sagður hafa dreift fljótt úr sér um bygginguna, sem hýsti einnig gamalt hótel og önnur fyrirtæki. Húsið var reist árið 1851 og var friðað. Þegar mest var börðust sextíu slökkviliðsmenn við eldinn, samkvæmt frétt Sky News. Samkvæmt Glasgow Times var búið að slökkva eldinn í húsinu að mestu klukkan 7:15 í morgun en slökkviliðsmenn voru enn að störfum að slökkva í glæðum. Í samtali við Glasgow Times segir maður sem fylgdist með eldinum að í upphafi hafi ástandið ekki virst alvarlegt. Smá eldur hafi verið sýnilegur á fyrstu hæð hússins en síðan hafi hann stækkað hratt. Á nokkrum mínútum hafi eldurinn náð í allar hæðir hússins og húsið staðið í ljósum logum. Eldurinn hefur leitt til umfangsmikilla samgöngutruflana í Glasgow.
Skotland Bretland Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira