Soham-morðinginn látinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. mars 2026 14:09 Ian Huntley árið 2002. EPA Ian Huntely, sem myrti tvær ungar stúlkur í Soham árið 2002, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir árás í hámarksöryggisgæslufangelsi. Hann starfaði sem húsvörður í skóla stúlknanna.
Huntley, sem var fæddur árið 1974, var að afplána tvo lífstíðardóma í fangelsi fyrir morðin í HMP Frankland-fangelsinu. Þann 26. febrúar var greint frá því að Huntley hefði verið fluttur á sjúkrahús eftir að ráðist var á hann með gaddastöng úr málmi. Hann hlaut alvarlegan skaða á heila. Huntley var tekinn af öndunarvél á föstudag eftir að ástand hans versnaði og lést fyrr í dag. Samkvæmt The Guardian eru slíkar árásir tíðar í fangelsinu. Oft hefur verið ráðist á Huntley en árið 2010 var hann skorinn á háls af öðrum fanga. Hann fór í bráðaaðger og tókst læknum að bjarga lífi hans. Fór í sjónvarpsviðtal í kjölfar morðanna Þann 4. ágúst 2002 fór tíu ára Jessica Chapman heim til Holly Wells, bestu vinkonu sinnar, í grillveislu með fjölskyldu Wells. Eftir að hafa varið deginum saman fóru þær út um klukkan sex til að kaupa sér sælgæti. Á leið sinni heim hittu þær Ian Huntley, sem starfaði sem húsvörður í skólanum þeirra, og lokkaði hann stelpurnar inn í húsið og sagði þeim að Maxine Carr, aðstoðarkennari stúlknanna og kærasta hans, væri heima. Í raun var Carr í heimsókn hjá móður sinni. Seinna um kvöldið fóru foreldrar þeirra að hafa áhyggjur. Fjögur hundruð lögreglumenn og mikill fjöldi sjálfboðaliða leituðu stúlknanna í þrettán daga. Þann 17. ágúst fann karlmaður líkamsleifar stúlknanna í skurði sextán kílómetrum frá Soham. Þann sama dag voru bæði Huntely og Carr handtekin. Maxine Carr með bréf sem stúlkurnar skrifuðu fyrir hana.EPA Í kjölfar þess að stúlkurnar hurfu mætti Huntley sjálfur í nokkur sjónvarpsviðtöl þar sem hann ræddi áhrif hvarfsins á samfélagið og varð hann eins konar talsmaður samfélagsins. Hann viðurkenndi að hafa verið sá síðasti sem sá stúlkurnar en þær hefðu komið inn á heimili hans vegna þess að önnur þeirra fékk blóðnasir. Þá laug Carr að hún hefði einnig verið viðstödd. Carr var úrskurðuð í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir hennar hlut.
Erlend sakamál Andlát Bretland England Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Sjá meira