Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Oddur Ævar Gunnarsson og Birgir Olgeirsson skrifa 6. mars 2026 19:13 Guðrún og Sigmundur eru ómyrk í máli þegar kemur að afgreiðslu ríkisstjórnarinnar á málinu. Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra.
Rætt var við þau Guðrúnu Hafsteinsdóttur formann Sjálfstæðisflokksins og Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins í kvöldfréttum Sýnar. Tilefnið var blaðamannafundur formanna ríkisstjórnarflokkanna í dag þar sem tilkynnt var að ákvörðun um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið verði lögð í hendur þjóðarinnar þann 29. ágúst næstkomandi. Málið kemur til kasta Alþingis strax eftir helgi. Erlendir miðlar greint frá atkvæðagreiðslu um aðild Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundinum í dag að það yrði umhugsunarefni ef einhverjir þingflokkar myndu reyna að tefja afgreiðslu málsins á þingi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir útilokað að málið fái hraða afgreiðslu á þingi. „Sérstaklega miðað við hvernig hæstvirtur forsætisráðherra, ef hægt er að tala þannig eftir þessa kynningu í dag, og utanríkisráðherra hafa reynt að villa um fyrir fólki um hvað þetta raunverulega snýst og þú vitnaðir í það að þetta snerist ekki um að þeirra mati hvort við vildum ganga í ESB eða ekki. Í dag hafa birst í erlendum fjölmiðlum fréttir um það að í lok ágúst ætli Íslendingar að kjósa um það hvort við göngum í ESB eða ekki. Enda er þetta hvergi þekkt annars staðar að stjórnvöld reyni að villa um fyrir almenningi með þeim hætti sem við horfum upp á hér. Ef ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu eins og það hefur sjálft margoft reynt að útskýra þá er það vegna þess að það ríki ætlar sér inn og þarf að byrja að aðlagast strax og aðlögunarferlið hefst.“ Óskynsamlegt að atkvæðagreiðslan sé í lok sumars Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að það sé ekki þannig að stjórnarandstaðan komi í veg fyrir það að ríkisstjórnin keyri hluti í gegn. Hún geri hinsvegar alvarlega athugasemd við það að málið hafi ekki verið kynnt í utanríkismálanefnd. „Hér hefur utanríkismálanefnd algjörlega verið hundsuð í þessu máli, sem er algjörlega fáheyrt ef það hefur nokkurn tímann gerst nema í tíð þessarar ríkisstjórnar, þannig samskiptin við utanríkismálanefnd eru engin og málið var ekki kynnt fyrir þeirri nefnd. Nú er það bara svo að við erum með ríkisstjórn sem einhverra hluta vegna hlustar ekki á neinar skynsemisraddir í hverju málinu á fætur öðru. Og við teljum það mjög óskynsamlegt að ætla að vera með þessa atkvæðagreiðslu í lok sumars þegar þjóðin er bundin við annað, er í fríum og svo framvegis. Þannig mér finnst þessi dagsetning henta frasakenndri og hentugleikastefnu þessarar ríkisstjórnar en ekki þjóðinni.“ Kynnt í Brussel en ekki utanríkismálanefnd Hún segist treysta þjóðinni til að kjósa í málinu en ekki ríkisstjórninni til að halda utan um málið. Sigmundur Davíð skýtur því inn að hann taki undir með Guðrúnu, málið hafi ekki verið kynnt fyrir utanríkismálanefnd. „En hvar var þetta kynnt? Þetta var kynnt í Brussel og unnið með embættismönnum þar. Þaðan heyrðum við fyrst af þessu, í erlendum fjölmiðlum sem höfðu uppljóstrara í stjórnkerfinu í Brussel. Það er fólkið sem þessi ríkisstjórn er að vinna með, lætur íslenskan almenning, íslenska fjölmiðla ekki einu sinni vita, ætlar að fara sínu fram í einhverju plotti, baktjalds og gera almenning á Íslandi að einhverskonar leiksoppum í þessari aðgerð sinni.“ Segir ekkert að marka Kristrúnu Guðrún segir greinilegt að ekkert sé að marka orð forsætisráðherra. Hún geri alvarlegar athugasemdir við það, því það verði að vera þannig að hægt sé að marka orð hennar. „27. ágúst 2024 sagði Kristrún Frostadóttir að hún myndi ekki leggja áherslu á þetta vegna þess að verkefnin heima fyrir væru svo brýn. Nú erum við hér með háa vexti, verðbólgan lækkar ekki neitt, atvinnuleysi eykst og þetta verðmætasköpunarhaust sem þær boðuðu í haust er hvergi sjáanlegt og það er deginum ljósara að ríkisstjórnin er búin að gefast upp á verkefninu og ætlar að hlaupa í skjól Evrópusambandsumsóknar, Þorgerður Katrín, Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir, vegna þess að þær ráða ekki við verkefnin á Íslandi.“
Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Utanríkismál Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Tveir á vinnupalli sem féll Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Sjá meira