Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Lovísa Arnardóttir og Árni Sæberg skrifa 6. mars 2026 12:54 Kristrún Frostadóttir segir Íslendinga áður hafa nýtt umrót í alþjóðamálum og geri það aftur nú. Vísir/Lýður Valberg Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. „
Við teljum að akkúrat núna standi Ísland það sterkt,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum. Þar kom einnig fram að haldnar yrðu tvær atkvæðagreiðslur verði sú fyrri samþykkt. Sú seinni snúist þá um þann samning sem fæst í viðræðunum. Spurt verður á kjörseðlinum hvort halda eigi viðræðunum áfram eða ekki. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði málið þannig standa og falla með þjóðinni. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra sagði stefnu Flokks fólksins skýra og að flokkurinn styddi beint lýðræði og vilja þjóðarinnar. Hún sagðist stolt af því að sýna að þau treysti þjóðinni. Hún sé ekki hrædd við þjóðarviljann ólíkt öðrum ónefndum stjórnmálaflokkum. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagðist ekki óttast þjóðarviljann. Vísir/Lýður Valberg Skrifar ekki undir slæman samning Þorgerður Katrín undirstrikaði á blaðamannafundinum að ef viðræður verða samþykktar muni hún aldrei skrifa undir afsölun á forræði Íslendinga yfir auðlindum, þar á meðal fiskveiðiauðlindinni. Hún sagði að ef verði af samningsviðræðum verði byrjað á erfiðustu viðræðunum, eins og um fiskveiðistjórnun, og þá verði þeirri spurningu svarað hvort einhver möguleiki sé á undanþágum innan sambandsins. Þorgerður Katrín sagðist sannfærð um að tekið verði tillit til sérstöðu Íslands. Það skipti máli fyrir ESB að gera það og læra af Íslendingum. Þrír mánuðir þurfa að líða frá því að Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu þar til þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram og voru formennirnir spurðir á blaðamannafundinum hvort þeir teldu líklegt að þessi dagsetning gæti staðist miðað við umræðu sem þarf að fara fram á þingi. Kristrún sagði að málið krefjist umræðu en það þurfi ekki margar vikur á Alþingi. „Mér fyndist það umhugsunarefni ef menn vilja tefja það að fólk fái að svara þessari spurningu,“ sagði forsætisráðherrann um mögulegt málþóf stjórnarandstöðu. Hvað varðar markmið samninga sagði Þorgerður að tryggja þurfi auðlindir, efnahagslegt og félagslegt öryggi og efnahagslegar varnir. Margt hafi breyst frá því að viðræður voru stöðvaðar á sínum tíma. Markmið Íslands sé þó óbreytt. Samningskaflar sem var lokað á sínum tíma verði uppfærðir. Þorgerður Katrín sagði fyrri umsókn enn gilda. Hefur áhyggjur af erlendum afskiptum Þorgerður Katrín sagði mega búast við því að erlend ríki reyni að hafa afskipti af kosningunni og kom skýrt fram í máli formanna að erlend afskipti yrðu ekki liðin, sama hvort það væri af hálfu ákveðinna ríkja eða Evrópusambandsins sjálfs. „Það má búast við því að erlend ríki geti verið með óbein afskipti af okkur. Þá skiptir þess vegna máli að við tökum yfirvegaða og upplýsta umræðu,“ sagði hún á fundinum og að hún hefði áhyggjur af afskiptum Rússa. Þorgerður Katrín undirstrikaði að það yrði ekki skrifað undir slæman samning. Vísir/Lýður Valberg Kristrún var spurð á fundinum um tímasetningu atkvæðagreiðslunnar, við lok sumars þegar fólk er í fríi og Alþingi ekki hafið eftir sumarfrí. Hún sagði mikla umræðu um Evrópusambandið í samfélaginu og að fólk hefði beðið atkvæðagreiðslunnar. Gott sé að þjóðin fái rými til að íhuga málið með sjálfri sér, fjarri umræðu á Alþingi. „Ég efast ekki um að það verður næg pólitísk umræða um þetta mál.“
Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjávarútvegur Öryggis- og varnarmál Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Alþingi Tengdar fréttir Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Í hádegisfréttum fjöllum við um blaðamannafundinn sem fram fer nú á tólfta tímanum þar sem ríkisstjórnin kynnir þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið upp aftur. 6. mars 2026 11:33 Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku. 6. mars 2026 11:34 Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Innlent Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Innlent Fleiri fréttir Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Sjá meira
Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Í hádegisfréttum fjöllum við um blaðamannafundinn sem fram fer nú á tólfta tímanum þar sem ríkisstjórnin kynnir þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið upp aftur. 6. mars 2026 11:33
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku. 6. mars 2026 11:34
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent