Samgönguáætlun og samkeppni í flutningum Ólafur Stephensen skrifar 9. mars 2026 07:01 Félag atvinnurekenda leggur til tvær breytingar á tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi. Félagið leggur til að fjárframlögum til hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn og framkvæmda við Þrengslaveg verði flýtt, í þágu greiðra samgangna við Þorlákshöfn og virkrar samkeppni í skipaflutningum. Tveir félagsmenn FA, flutningafélög sem veita stóru skipafélögunum tveimur vaxandi samkeppni, starfa í Þorlákshöfn. Stjórnvöld ýti undir samkeppni í flutningastarfsemi Í umsögn FA til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis er bent á að fákeppni hafi illu heilli einkennt skipaflutningamarkaðinn á Íslandi um áratugaskeið. Ónóg samkeppni, hátt flutningsverð og ógegnsæjar gjaldskrár stóru skipafélaganna, Eimskips og Samskipa, eru á meðal algengustu umkvörtunarefna félagsmanna FA, sem flestir hverjir stunda inn- eða útflutning í einhverjum mæli. Ekki þarf að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að virk samkeppni sé í flutningastarfsemi í þágu lægra vöruverðs, en vegna legu Íslands er flutningskostnaður stærri áhrifaþáttur í vöruverði en víðast í nágrannalöndunum. Það er því mikilvægt hlutverk stjórnvalda, út frá hagsmunum jafnt atvinnulífs sem neytenda, að tryggja aðstæður sem ýta undir virka samkeppni í flutningastarfsemi. Eftir að uppvíst varð um stórfellt ólögmætt samráð Eimskips og Samskipa árið 2023 beindi Samkeppniseftirlitið tilmælum til stjórnvalda, m.a. innviðaráðuneytisins, um aðgerðir til að efla samkeppni á flutningamarkaði. Á meðal tilmæla SKE er að „stjórnvöld og opinberir aðilar skapi aðstæður fyrir virkari samkeppni á flutningamarkaði“. Telur SKE það til þess fallið að „lækka vöruverð á ólíkum sviðum atvinnulífsins og auka efnahagsþrótt, almenningi og atvinnulífi til hagsbóta.“ Einnig var mælzt til þess að „stjórnvöld og hlutaðeigandi opinberir aðilar tryggi aðgengi nýrra og minni keppinauta í sjóflutningum að fullnægjandi hafnaraðstöðu og skipaafgreiðslu hér á landi.“ Ástand vegtengingarinnar við Þorlákshöfn er samkeppnishindrun Innviðaráðuneytið hefur lítið aðhafzt í þessum málum og ekki treyst sér til að svara ítrekuðum bréflegum spurningum FA um hvernig ráðuneytið hyggist bregðast við tilmælum samkeppnisyfirvalda. FA hefur hins vegar bent ráðuneytinu á leiðir til þess. Félagið hefur þannig verið í talsverðum samskiptum við innviðaráðuneytið vegna mikilvægis bættra vegasamgangna við Þorlákshöfn, en FA miðlaði til ráðuneytisins upplýsingum frá Vegagerðinni um að vegtengingin við bæinn um Þrengsla- og Þorlákshafnarveg er mun síðri að gæðum en aðrar aðalleiðir á suðvesturhorninu, burðarþol minna, vegurinn mjórri, vetrarþjónusta minni og lokanir tíðari. Vegtenging við Þorlákshöfn, sem er síðri að gæðum en aðrar aðalleiðir á suðvesturhorninu, er samkeppnishindrun í vegi skipafélaganna sem starfa í Þorlákshöfn. FA hvatti innviðaráðherra í áðurnefndu erindi til að beita sér fyrir því að uppbygging Þrengslavegar, og eftir atvikum Þorlákshafnarvegar, þannig að vegurinn verði að fullu sambærilegur við aðrar aðalleiðir á svæðinu, verði sett á samgönguáætlun hið fyrsta. Slíkt væri ekki eingöngu samgöngubót og öryggismál, heldur ekki síður mikilvæg samkeppnisaðgerð í framhaldi af áliti Samkeppniseftirlitsins. Erindi FA var fylgt eftir á fundi framkvæmdastjóra félagsins og bæjarstjóra Sveitarfélagsins Ölfuss með ráðherra 18. nóvember sl., þar sem af hálfu ráðherra var lýst góðum skilningi á mikilvægi greiðra vegasamgangna við Þorlákshöfn fyrir samkeppni í flutningum. Það kom FA því mjög á óvart að sjá að í tillögu ráðherra er ekki gert ráð fyrir neinum framkvæmdum við Þrengslaveg fyrr en á árunum 2029-2030. Að mati félagsins er brýnt að ráðizt verði í framkvæmdir við veginn þegar í stað. Annað af tveimur skipum sem eru í smíðum fyrir Smyril Line. Skipin eru stærri, hagkvæmariog umhverfisvænni en eldri skip en verða að hafa lengri viðlegukant til að geta athafnað sig í Þorlákshöfn.Félag atvinnurekenda. Forsendur fyrir milljarðafjárfestingum settar í uppnám Hafnarbætur í Þorlákshöfn eru líka forsenda fyrir virkri samkeppni í skipaflutningum. Í ljósi jákvæðra undirtekta á áðurnefndum fundi með innviðaráðherra kom það FA og félagsmönnum þess stórlega á óvart að í tillögunni að samgönguáætlun skuli gert ráð fyrir algerri stefnubreytingu frá fyrri samgönguáætlunum. Gert er ráð fyrir að framlögum til uppbyggingar hafnar í Þorlákshöfn sé frestað til 2029-2030 og að hlutdeild ríkisins í framkvæmdum verði auk þess skorin niður úr 60% í 40%. Gangi þetta eftir, setur það í uppnám allar forsendur fyrir milljarðafjárfestingum Smyril Line, félagsmanns FA, í nýjum, stærri og umhverfisvænni skipum sem verða tilbúin á komandi sumri og eru sérhönnuð til að sigla á Þorlákshöfn. Núverandi hafnaraðstaða í Þorlákshöfn er ófullnægjandi út frá öryggissjónarmiðum og mun gera fyrirtækinu mjög erfitt fyrir að halda áætlun, sérstaklega yfir veturinn, jafnvel við eðlilegar veðuraðstæður. Fyrir liggur brýn þörf á að framlengja Skarfaskersbryggju þannig að nýju skipin geti lagzt þar að. Sú stefnubreyting, sem felst í tillögunni, brýtur með alvarlegum hætti gegn réttmætum væntingum fyrirtækisins um stuðning stjórnvalda við uppbyggingu fullnægjandi hafnaraðstöðu. Fjárveitingum verði flýtt Að mati FA ganga ákvæði tillögunnar, sem varða forgangsröðun bæði varðandi vegasamgöngur til Þorlákshafnar og hafnarframkvæmdir í sveitarfélaginu, gegn tilmælum samkeppnisyfirvalda og ríkum hagsmunum atvinnulífs og almennings af virkri samkeppni í flutningum. Hér er um að ræða mál sem varðar miklu stærri hagsmuni en hag eins sveitarfélags eða eins eða tveggja fyrirtækja. Aðgerðaleysi stjórnvalda í framhaldi af tilmælum Samkeppniseftirlitsins þjónar fyrst og fremst hagsmunum stóru skipafélaganna tveggja, sem uppvís urðu að ólögmætu samráði, og að því að viðhalda ægivaldi Faxaflóahafna á flutningamarkaðnum. Félag atvinnurekenda leggur til eftirfarandi breytingar á tillögunni að samgönguáætlun: Fjárveitingar vegna framkvæmda við breikkun Þrengslavegar um Skógarhlíðarbrekkur færist á árin 2026 og 2027. Fjárveitingar vegna lengingar Skarfaskersbryggju í Þorlákshöfn færist á árið 2026 og hlutfall kostnaðarþátttöku ríkisins verði óskert. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Samgönguáætlun Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar