Viðskipti erlent

Fellur frá mála­rekstri og býður Ís­lendingum af­slætti í sáttargjöf

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Richard Walker er sonur Malcolm Walker, stofnanda Iceland Foods. Hér sést hann bjóða Keir Starmer inn í eina af verslunum fyrirtækisins en rétt er að geta þess að myndin var tekin áður en Starmer varð forsætisráðherra.
Richard Walker er sonur Malcolm Walker, stofnanda Iceland Foods. Hér sést hann bjóða Keir Starmer inn í eina af verslunum fyrirtækisins en rétt er að geta þess að myndin var tekin áður en Starmer varð forsætisráðherra. Getty/Stefan Rousseau

Stjórnendur bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. hafa ákveðið að falla frá tilraunum sínum til að tryggja sér vörumerkið „Iceland“, eftir að hafa tapað í baráttunni við íslenska ríkið í þriðja sinn í fyrra.

Forstjórinn Richard Walker sagði í samtali við Financial Times í dag að hann hygðist taka þau hundruð þúsunda punda sem fyrirtækið hefði varið í mögulega fjórðu og fimmtu tilraun fyrir dómstólum og verja þeim frekar í afslátt til handa íslenskum neytendum.

Samkvæmt umfjöllun Guardian mun afslátturinn skila sér í formi afsláttarmiða, sem Íslendingar munu geta nýtt í verslunum Iceland. Framkvæmdin hlýtur þó að verða einhver önnur, þar sem verslunum Iceland á Íslandi hefur verið lokað.

Vörur frá Iceland eru nú seldar í öðrum verslunum, til að mynda Nettó.

Vísir greindi frá því síðasta sumar að dómstóll Evrópusambandsins hefði staðfest niðurstöðu Hugverkastofu ESB varðandi vörumerkið „Iceland“ og hafnað kröfum Iceland Foods Ltd. um ógildingu.

Niðurstaðan hefur það í för með sér að Iceland Foods Ltd. getur ekki lengur hindrað íslensk fyrirtæki frá því að auðkenna sig með upprunalandinu við markaðssetningu innan Evrópusambandsins.

Það var íslenska ríkið sem höfðaði upphaflega málið árið 2016. Dómstóll ESB staðfesti þá niðurstöðu að fyrirtæki gætu ekki eignað sér landfræðileg heiti.

„Við töpuðum í þriðja sinn. Við erum hætt. Og það er í fínu lagi; við þurfum ekki að breyta nafninu okkar,“ sagði Walker við Financial Times. Hann sagði hins vegar ákveðið áhyggjuefni að nú gætu óskyldir aðilar opnað verslanir, kallað þær Iceland og selt vörur frá Iceland Foods.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×