Hvernig getur íþróttaþjálfari breytt lífi barns með málþroskaröskun (DLD)? Álfhildur Þorsteinsdóttir skrifar 6. mars 2026 08:03 Málþroskaröskun DLD (Developmental Language Disorder) er algeng taugaþroskaröskun sem veldur miklum erfiðleikum við að nota og/eða skilja tungumálið en um það bil eitt af hverjum 14 börnum glímir við DLD. Þessi börn stunda íþróttir eins og önnur börn, í öllum aldurshópum og á öllum getustigum. Íþróttaþjálfarar eru ekki endilega meðvitaðir um áskoranir þeirra tengdar tungumálinu og þau áhrif sem þær geta haft á frammistöðu á æfingum. Það er því mjög hjálplegt þegar foreldrar eiga samtal við þjálfara og útskýra hvað það þýðir að vera með DLD. DLD - áskoranir í íþróttum DLD tengist ekki greind, áhuga eða uppeldi en börn með DLD geta verið mjög áhugasöm um íþróttir og líkamlega fær rétt eins og önnur börn. Áskorunin fyrir þau er að vinna úr tungumálinu á æfingum og í leikjum, skilja fyrirmæli, muna reglur, meðtaka breytingar og tengja orð við athafnir. Íþróttaæfingar eru oft mjög krefjandi hvað málnotkun og skilning varðar þar sem fyrirmæli eru gefin hratt, reglur útskýrðar munnlega og oft gert ráð fyrir að börn meðtaki hlutina um leið. Fyrir börn með DLD getur þetta verið yfirþyrmandi, þau misskilja hlutina og upplifa sig síðri en önnur börn þó þau hafi líkamlega getu og áhuga á að standa sig vel. Hærra brottfall hjá börnum með taugaþroskaraskanir Það eru ekki margar rannsóknir sem skoða DLD sérstaklega í tengslum við íþróttaiðkun en rannsóknir á börnum með taugaþroskaraskanir og námserfiðleika sýna fram á minni þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi og aukið brottfall hjá þessum hópi. Brottfallið skýrist ekki af skorti á áhuga, þvert á móti vilja flest þessara barna vera með og standa sig vel. Ástæður fyrir brottfallinu tengjast frekar síendurteknum misskilningi, félagslegum erfiðleikum og upplifun þeirra að þau séu eftir á sem leiðir til verri sjálfsmyndar. Skipulagt íþróttastarf ætti að vera vettvangur til að ýta undir gleði og styrkleika barna en þegar DLD og aðrar taugaþroskaraskanir eru til staðar geta þessar aðstæður verið streituvaldandi. Hvað geta þjálfarar gert? Íþróttaþjálfarar þurfa ekki sérfræðimenntun til að styðja börn með DLD. Oft nægir að breyta því hvernig æfingar eru útskýrðar fyrir þeim og hvernig samskipti fara fram. Litlar breytingar og aðlaganir geta haft mikil áhrif en geta aftur á móti gagnast öllum börnum. Hér eru nokkur dæmi um hjálplegar aðferðir sem styðja við börn með DLD. Dæmin eru tekin með körfubolta í huga en síðan er hægt að heimfæra yfir á aðrar íþróttir: Stytta fyrirmæli eða endurtakið þau á styttri hátt. Setjið fram eitt til tvö atriði í einu og forðist langar útskýringar. Þjálfari segir til dæmis: „Þið hlaupið fyrst upp hægri kantinn, sendið svo niður í hornið, köttið* inn í teiginn og hlaupið svo yfir völlinn til baka.“ Fyrir barn með DLD væri betra að segja: Hlaupa kantinn (hlé) senda í hornið (hlé) kötta að körfunni. Sýna æfingarnar. Börn með DLD læra mun betur þegar þau sjá hvað þau eiga að gera. Þá gæti þjálfari til dæmis látið tvo leikmenn sýna hvað á að gera eða gengið sjálfur í gegnum æfinguna með boltann, gott er að sýna nákvæmlega hvar á vellinum æfingin byrjar og hvar hún endar. Sum börn þurfa að sjá æfinguna aðeins oftar áður en þau taka þátt sjálf. Þá er um að gera að leyfa þeim að fylgjast með í byrjun og hvetja þau til þess sé óöryggi til staðar. Nota sama orðalag eins og hægt er. Í körfubolta er algengt að nota mörg orð yfir sömu hlutina, til dæmis: pressa/dekka/verjast eða keyra/fara í gegn/sækja á körfuna. Fyrir barn með DLD getur þetta verið flókið og mikilvægt að útskýra hvað orð þýða samhliða því að reyna að einfalda orðalag sitt. Skýr rútína hjálpar til. Svipuð uppbygging æfinga og fyrirsjáanleiki minnkar mállegt álag og öryggi. Gott er að segja í upphafi æfingar ,,Í dag byrjum við á sendingum, svo skjótum við og endum í leik”. Ef tússtafla er til staðar gæti hjálpað að punkta niður hvert planið er fyrir æfinguna svo barnið geti séð það allan tímann. Athuga skilning með athöfn. Spurningin „Skildirðu þetta?“ virkar sjaldan vel fyrir þennan hóp barna en þau svara oftast játandi til að fela erfiðleika sína. Betra væri að segja: „Viltu sýna mér hvar þú átt að standa.“ eða „Prófaðu að sýna mér hvað þú gerir þegar þú færð boltann?“ en þannig leyfir þú barninu að prófa sig áfram og fá tækifæri til að spyrja sé það óöruggt. Þetta sýnir raunverulegan skilning án þess að setja barnið í óþægilega stöðu. Þarna er samt ekki verið að meina að barnið eigi að vera með sýnikennslu fyrir allan hópinn. Í boltaíþróttum er oft verið að breyta reglum á meðan á æfingu stendur sem dæmi: ,,Nú má ekki dripla”, ,,Nú má ekki senda á sama leikmann tvisvar í röð” eða ,,Tvær snertingar áður en þið skjótið” en svona skyndilegar breytingar reynast börnum með DLD mjög erfiðar og þá er hjálplegt að stöðva æfinguna, leggja áherslu á lykilorð, sýna hvað á að gera og endurtaka svo lykilorðin. Sýna þolinmæði og styðjandi viðhorf. Misskilningur er ekki óhlýðni og hrós fyrir áreynslu og þátttöku skiptir sköpum fyrir sjálfstraust barnsins. Einnig er gott að hrósa börnum fyrir að spyrja ef þau skilja ekki hlutina því ef barn með DLD upplifir að spurningum sé vel tekið er það líklegra til að spyrja aftur síðar og þannig læra meira. Af hverju skiptir þetta máli? Skipulagt íþróttastarf getur verið mjög mikilvægur og verndandi þáttur í lífi barna með DLD. Það að stunda íþróttir og vera hluti af liði getur styrkt sjálfsmynd, félagslega stöðu og líðan – ef æfingarnar eru aðgengilegar öllum. Þegar íþróttaumhverfið er lagað að fjölbreyttum þörfum barna minnkar brottfall, þátttaka eykst og fleiri fá tækifæri til að blómstra. Þjálfarar gegna hér lykilhlutverki. Með auknum skilningi á DLD og einföldum breytingum geta þeir tryggt að færni barnsins á vellinum fái að njóta sín – óháð því hver tungumálafærni þeirra er. Höfundur er talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Suðurlands og áhugamanneskja um íþróttir. *Undirrituð biðst afsökunar á enskuslettunni en ekki tókst að finna góða íslenska þýðingu fyrir þetta körfuboltaslangur, hugmyndir: aðhlaup, skurður, stunga, gegnumhlaup, kisuhlaup. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun