Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Kjartan Kjartansson skrifar 2. mars 2026 15:24 Eitt skipanna sem voru notuð við basatilraunina í Maineflóa í ágúst. Til stóð að gera sams konar tilraun í Hvalfirði í fyrra. Daniel Cojanu/Woods Hole-haffræðistofunin Bandarískir vísindamenn segja að tilraun sem þeir gerðu með basalausn í Maine-flóa hafi bundið kolefni úr lofti án þess að skaða sjávarlífverur. Utanríkisráðherra hafnaði því að veita leyfi fyrir sambærilegri tilraun í Hvalfirði síðasta sumar þrátt fyrir jákvæðar umsagnir sérfræðistofnana.
Aðferðin sem vísindamennirnir frá Woods Hole-haffræðistofnuninni í Massachusetts beittu í tilrauninni í Maine-flóa í ágúst var sú sama og rannsóknafélagið Röst hugðist nota í Hvalfirði. Um 65 þúsund lítrum af basískri vítissódalausn var veitt út í hafið og fylgst var með áhrifunum af skipum, með gervihnöttum, skynjurum og siglandi drónum. Litarefninu ródamíni var blandað út í lausninni til þess að fylgjast með dreifingu hennar líkt og til stóð að gera í tilraun Rastar. Markmiðið var einnig það sama. Að rannsaka hvort hægt væri að auka kolefnisupptöku sjávar án þess að valda frekari súrnun hans með því að auka svonefnda basavirkni hans. Leiðtogi hópsins segir vísindaritinu New Scientist að á bilinu tvö til tíu tonn af koltvísýringi hafi verið fjarlægð úr andrúmsloftinu dagana fjóra sem tilraunin stóð yfir samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum. Mögulega nái bindingin fimmtíu tonnum þegar uppi verður staðið. Óljóst er hvort að tilraunin sem slík hafi verið kolefnishlutlaus þar sem losun við framleiðsluna á basanum og flutningur hans á tilraunastaðinn hefur ekki verið metin enn sem komið er. Samráð við heimamenn lykilatriði Fyrirhuguð tilraun Rastar mætti mótstöðu annars sveitarfélagsins við Hvalfjörð og hagsmunaðila í hval- og laxveiðum í firðinum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utansríkisráðherra, hafnaði Röst um leyfi fyrir rannsókninni þar sem hún taldi lög skorta yfir tilraunir sem þessar. Bæði Hafrannsóknastofnun og Umhverfis- og orkustofnun höfðu veitt tilrauninni jákvæða umsögn og töldu ekki hættu á neikvæðum umhverfisáhrifum af henni. Þá hefði tilraunin mikið vísindalegt gildi. Kristin Kleisner frá umhverfisverndarsamtökunum Environmental Defense Fund sem tók þátt í tilrauninni í Maine segir við New Scientist að það hafi verið lykilatriði að eiga í nánu samráði við heimamenn við flóann í ljósi þess hversu umdeildar tilraunir sem þessar eru. Kolefnisföngun og förgun í einu skrefi Höf jarðar hafa nú þegar tekið við um fjórðungi af þeim koltvísýringi sem menn hafa dælt út í lofthjúpinn frá upphafi iðnbyltingar og þannig komið í veg fyrir enn frekari hnattræna hlýnun en þegar hefur orðið. Upptaka sjávar á koltvísýringi veldur súrnun hafsins sem hefur neikvæð áhrif á kalkmyndandi lífverur sem eru gjarnan undirstaðan í fæðukeðjum í hafinu. Þá takmarkar súrnunin getu hafsins til þess að taka við meira kolefni. Sjávarrannsóknasetrið Röst vildi fá leyfi til þess að veita útþynntri basalausn út í Hvalfjörð til þess að rannsaka aðferð til þess að auka kolefnisupptöku sjávar í fyrra. Beiðni þess var hafnað á þeim forsendum að skýrari lög skorti um tilraunir af þessu tagi.Röst/Þráinn Kolbeinsson Tilraunin sem gerð var í Maine, og til stóð að gera í Hvalfirði, gengur út á að kanna hvort hægt sé að auka kolefnisupptöku sjávar án þess að það leiði til frekari súrnunar. Viðbótarkolefnið sem er tekið upp er sagt verða að uppleystum matarsóda sem gæti haldist í hafinu í þúsundir ára. Adam Subhas, forsprakki tilraunarinnar í Maine, segir einn kostinn við þess aðferð kolefnisbindingar þá að hún fangi og fargi kolefni í einu skrefi. Með öðrum aðferðum þurfi fyrst að fanga koltvísýring úr lofti og svo farga honum varanlega á einhvern hátt.
Vísindi Bandaríkin Hvalfjarðarsveit Loftslagsmál Kjósarhreppur Hafið Mest lesið „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira