Beljan og Bertolli Árni Stefán Árnason skrifar 1. mars 2026 11:00 Ég hef dálæti á því þegar málefni líðandi stundar gefa mér tækifæri til að höggva á meinsemdir í íslensku samfélagi. Landspítalinn hefur ákveðið að taka hið holla Bertolli viðbit í notkun í stað hins rándýra Smjörva. Er það vel vegna þess að Bertolli viðbit er mjög hagstætt í verði og meinhollt. En það er ekki umræðuefni dagsins heldur almennt viðhorf Íslendinga til meðferðar íslensku mjólkurinnar. Notkun hennar felur í sér eitthvert viðbjóðslegasta dýraníð sem á sér stað á Íslandi. Ég kem því mjólkurkúnni og afkvæmum hennar til varnar í þessum pistli. Íslendingar eru, skeytingarlausir á velferð kúa, beljunnar okkar, fíklar á allar mjólkurafurðir. Kýr eru sæddar ár eftir ár til að verða ófrískar svo þær geti alið kálfa. Tilgangurinn er einn og aðeins einn, að stela mjólkinni sem þær framleiða fyrir kálfinn. Nýfæddur kálfurinn er dregin frá móður sinni stuttu eftir fæðingu og sér hana aldrei framar. Þessu klappa Íslendingar fyrir þegar þeir mæra hinn handónýta ost sem framleiddur er hérlendis og standa í röðum eftir allskonar ís og sulla í sig það sem er kallað Nýmjólk. Siðvitund Íslendinga er svo grunn að þeir vilja ekki heyra um þetta. Græðgi þeirra í hina gagnslausu mjólk handa mannslíkamanum skal ganga framar. Meira að segja heimilislæknar, sem kallaðir eru frægir, hvetja til þessa dulda dýraníðs með því að segja í heimskulegum auglýsingum: meira smjör, meira meira smjör á pönnuna. Líkleg er mjólkurframleiðslan eitt mesta dýraníð sem á sér stað á Íslandi. Mjólkurkýr deyja langt áður en meðalaldri er náð útbrunnar á líkama, sendar í sláturhús hvar þær enda eflaust sem gæludýrafóður. Þetta finnst Íslendingum smart. Þetta er siðvitund Íslendinga, að kvelja búfé. Já Íslendingar sýna mikla grimmd í að kvelja búfé í mjólkuriðnaði, sauðfjárbúskap, alifuglarækt o.fl. eldi. Framfylgd íslenskrar löggjafar í dýravernd er handónýt þegar kemur að búfé og öfgakennd þegar kemur að gæludýrum. Niðurstaðan er einföld. Löggjafinn er ófær um að rita lög sem verndar dýr með sönnu og því er öll framkvæmd dýraverndar að lögum af hendi framkvæmdavaldsins í algeru skralli hjá hinni handónýtu Matvælastofnun en síðast en ekki síst hjá Viðreisnarráðherranum Hönnu Katrínu sem engan áhuga hefur á dýravernd. Höfundur er dýraverndarlögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Árnason Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar