Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lovísa Arnardóttir skrifar 26. febrúar 2026 09:14 Vegagerðin bauð út flugleið til Ísafjarðar eftir að Icelandair tilkynnti að þau ætluðu að hætta flugi þangað. Icelandair er eina félagið sem bauð í flugleiðina. Vísir/Einar og Viktor Freyr Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni.
Samkvæmt opnunarskýrslu útboðsins var áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar 1,3 milljarðar en tilboð Icelandair hljóðar upp á 3,5 milljarða og er því tæpum 2,2 milljörðum yfir áætlun. „[Það barst] sem sé þetta eina tilboð og við erum bara að fara yfir það og skoða málið í framhaldinu og getum ekkert sagt í bili,“ segir G. Pétur um tilboðið. Tilkynntu í fyrra að þau myndu hætta flugi Í mars 2025 greindi Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, frá því að Icelandair hygðist hætta að fljúga til Ísafjarðarbæjar eftir sumarið 2026. Ástæðan væri sérstaða flugvallarins sem leiddi til þess að einungis litlar vélar geta lent þar. Eyjólfur Ármannsson, samgönguráðherra sagði við það tilefni það mjög slæmar fréttir að Icelandair ætlaði að hætta flugi og sagði stjórnvöld ætla að tryggja að fluginu yrði ekki hætt. „Við ætlum að tryggja að það verði flogið til Ísafjarðar eftir lok sumars á næsta ári. Þetta er bara vinna sem ég mun fara í,“ sagði Eyjólfur en bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gagnrýndi ákvörðunina einnig á sama tíma. Útboðið var auglýst á vef Vegagerðarinnar þann 23. janúar síðastliðinn og lauk útboðinu svo á þriðjudaginn. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Í útboðsauglýsingu kom fram að boðið væri út flugleiðin Reykjavík – Ísafjörður– Reykjavík og að samningstími væri fjögur ár, frá 1. september 2026 til og með 31. ágúst 2030, með möguleika á framlengingu einu sinni í eitt ár. Þá kemur fram að ekki verði haldinn sérstakur opnunarfundur en að eftir lok tilboðsfrests verði bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. Á vef útboðsins segir í opnunarskýrslu þess að það feli ekki í sér niðurstöðu. Þar sé einungis birt heildartilboðsfjárhæð en endanlegt val getur ráðist af fleiri valforsendum samkvæmt útboðsgögnum. Þá er einnig tekið fram að framsetning opnunarskýrslu sé með fyrirvara um hugsanlega reiknivillu og að ekki sé búið að meta gildi tilboða.
Fréttir af flugi Ísafjarðarbær Byggðamál Vegagerð Samgöngur Icelandair Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. 30. apríl 2025 22:20 Vilja nýjan flugvöll á Ísafirði Innviðafélag Vestfjarða segir að áform Icelandair um að hætta flugi til Ísafjarðarflugvallar árið 2026 fela í sér bakslag fyrir samfélagið á Vestfjörðum. Ákvörðunin undirstriki hversu brýnt það sé að huga af alvöru að staðsetningu og uppbyggingu flugvallarins á Ísafirði, til að auka flugöryggi og aðgengi mismunandi vélakosts. 4. mars 2025 21:39 Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira
Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. 30. apríl 2025 22:20
Vilja nýjan flugvöll á Ísafirði Innviðafélag Vestfjarða segir að áform Icelandair um að hætta flugi til Ísafjarðarflugvallar árið 2026 fela í sér bakslag fyrir samfélagið á Vestfjörðum. Ákvörðunin undirstriki hversu brýnt það sé að huga af alvöru að staðsetningu og uppbyggingu flugvallarins á Ísafirði, til að auka flugöryggi og aðgengi mismunandi vélakosts. 4. mars 2025 21:39