Díhýdrómónóxíð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar 26. febrúar 2026 09:00 Díhýdrómónóxíð er kemískt efni, mikið notað í iðnaði og sérstaklega stóriðju, sem getur drepið manneskju við jafnvel litla innöndun. Hundruðir þúsunda deyja úr ofskammti af þessu efni á ári hverju en það er varla nokkurn tíma talað um það. Það fer úr verksmiðjum af öllu tagi beinustu leið út í umhverfið, bæði með skólpi út í hafsjó og útblæstri út í andrúmsloftið. Þar endar það í fiskinum, grænmeti og öllum dýraafurðum sem við síðan neytum á hverjum einasta degi. Lítum bara aðeins á efnafræðina til að glöggva okkur á skaðseminni til fullnustu. Í „dýhýdró“ er „dí“ fyrir „tvo“, „hýdró“ vísar til vetniseindar og „mónóxíð“ er „mónó-oxíð“ og vísar til einnar súrefniseindar. Efnafræðilega formúlan er því eitt H, síðan tölustafurinn 2 til að tákna tvö slík, og síðan eitt O. Há-tveir-o, sennilega frægasta efnaformúla í heimi. Ég er sem sagt að tala um vatn. Allt sem er skrifað í þessum pistli um þetta efni er satt. Ekki eina einustu rangfærslu er að finna um skaðsemi efnisins eða hlut þess í umhverfinu. En skrifin hljómuðu samt eins og að um hræðilegan hlut væri að ræða, vegna þess að þau voru skrifuð markvisst og meðvitað í þeim tilgangi að vekja ótta. Þetta er munurinn á því að tala um vatn og díhýdrómónóxíð. Í opinberri umræðu er sjaldan talað um hlutina eins og vatn, en mjög oft eins og díhýdrómónóxíð. Fullkomlega hversdagslegir hlutir eru persónugerðir í skrattanum á veggnum, einungis til að hafa einhvern, eða eitthvað, til að óttast og hata. Þetta er sérstaklega áberandi þegar kemur að einhverju sem er „að utan“, eins og í útlendingamálum og alþjóðasamstarfi. Þá eru jafnvel fullkomlega eðlilegir hlutir orðaðir á hátt sem lýsa geðshræringu mælandans frekar en einhverju illu við fyrirbærið sjálft. Ef hlustendur vara sig ekki, þá geta þeir orðið fyrir barðinu á tjáningarmátanum með þeim afleiðingum að þótt enginn hafi tæknilega séð logið að þeim, þá eru þeir samt að misskilja veruleikann, raunverulegu ógnirnar og réttu viðbrögðin við þeim. Sem dæmi; að Evrópusambandið „ásælist auðlindir okkar“. Það er erfitt að segja að þetta sé tæknilega rangt, en þetta er samt bara taugaveikluð leið til að orða þann fullkomlega eðlilega metnað að vilja hafa aðgang að sem flestri vöru og sem flestri þjónustu. Við seljum útlendingum einungis fisk ef þeir ásælast fisk. Alveg eins og að við „ásælumst eigur annarra“ þegar við förum út í búð til að kaupa frosna pepperónípizzu. Þá er tæknilega satt að við „ásælumst eigur annarra“, en það orðalag gefur samt ranga mynd af því sem er í gangi. Við erum bara að fara út í búð að kaupa í matinn. Frosna pepperónípizzu, nánar til tekið. Þetta þýðir ekki að öll viðvörunarorð séu marklaus. En það er hollt að hafa í huga, við hvers kyns lýsingar á gangi mála, muninn á því sem er verið að segja annars vegar, og hinsvegar hvernig sagt er frá því. Höfundur er hugbúnaðarsmiður og í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Hrafn Gunnarsson Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar