Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. febrúar 2026 08:27 Sjálfsmark í uppbótartíma varð til þess að Arsenal tapaði tveimur stigum í gærkvöld. Michael Regan/Getty Images Topplið ensku úrvalsdeildarinnar missteig sig harkalega í gærkvöldi eftir að hafa náð tveggja marka forystu á útivelli. Mörkin úr leik Wolves og Arsenal má sjá hér fyrir neðan.
Klippa: Wolves - Arsenal 2-2 Arsenal er þar með búið að tapa fjórum stigum í síðustu tveimur deildarleikjum sínum og er að gefa Manchester City dauðafæri á að vinna enn frekar á forskoti þeirra á toppnum. Arsenal hafði tapað stigum á móti Brentford í leiknum á undan og mætti slakasta liði deildarinnar í gær. Úrslitin eru því gríðarlegt áfall. Arsenal fékk draumabyrjun þegar Bukayo Saka skallaði boltann í markið strax á fimmtu mínútu leiksins eftir fyrirgjöf frá Declan Rice. Þannig var staðan þar til á í upphafi seinni hálfleiks þegar varnarmennirnir Piero Hincapié og Gabriel unnu vel saman. Gabriel kom boltanum á vinstri bakvörðinn og Hincapié skoraði laglega. Úlfarnir áttu aftur á móti svar og Hugo Bueno minnkaði muninn í 2-1 aðeins fimm mínútum síðar með skoti fyrir utan teig. Liðið vann sig vel inn í leikinn eftir erfiða byrjun og stríddi toppliðinu það sem eftir var leiksins. Úlfarnir uppskáru síðan jöfnunarmark í uppbótartímanum þegar skot Tom Edozie fór af Riccardo Calafiori og í eigið mark. Þeir sem áttu þó mesta sök á því voru David Raya og Gabriel sem voru afar klaufalegir eftir fyrirgjöf og boltinn datt fyrir Edozie. Arsenal hafði verið að tefja í aðdraganda jöfnunarmarksins og tókst ekki að skipta aftur í sóknargírinn og sækja sigur. Niðurstaðan er því tvö töpuð stig á móti lélegasta liði deildarinnar. Mörkin má sjá í spilaranum að ofan.
Enski boltinn Arsenal FC Wolverhampton Wanderers Tengdar fréttir „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, sá sína menn missa frá sér tvö stig í öðrum leiknum í röð og gefa Manchester City tækifæri á að minnka forskot þeirra enn frekar á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 18. febrúar 2026 22:55 „Okkur var refsað fyrir það“ Bukayo Saka var niðurlútur og vonbrigðin uppmáluð þegar hann mætti í viðtal eftir 2-2 jafntefli Arsenal á móti botnliði Úlfanna í kvöld. 18. febrúar 2026 22:46 Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Arsenal mistókst að ná sjö stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld eftir 2-2 jafntefli á móti neðsta liði deildarinnar. 18. febrúar 2026 22:04 Mest lesið Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti Boehly selur og kveður Chelsea Enski boltinn Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Enski boltinn Fagn Brynjólfs slær í gegn Fótbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport Fleiri fréttir Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Sjá meira
„Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, sá sína menn missa frá sér tvö stig í öðrum leiknum í röð og gefa Manchester City tækifæri á að minnka forskot þeirra enn frekar á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 18. febrúar 2026 22:55
„Okkur var refsað fyrir það“ Bukayo Saka var niðurlútur og vonbrigðin uppmáluð þegar hann mætti í viðtal eftir 2-2 jafntefli Arsenal á móti botnliði Úlfanna í kvöld. 18. febrúar 2026 22:46
Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Arsenal mistókst að ná sjö stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld eftir 2-2 jafntefli á móti neðsta liði deildarinnar. 18. febrúar 2026 22:04