Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Árni Sæberg skrifar 18. febrúar 2026 14:55 Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er formaður velferðarnefndar. Vísir/Vilhelm Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu var ekki afgreitt úr velferðarnefnd til þriðju umræðu í morgun eins og til stóð. Stefnt er að því að ræða málið á öðrum fundi en fram undan er kjördæmavika svo málið verður í fyrsta lagi afgreitt þann 2. mars.
Fátt hefur verið tekist meira á um á Alþingi undanfarið en frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Þannig ætlaði til að mynda allt um koll að keyra í þinginu í gærkvöldi þegar málið var rætt undir liðnum fundarstjórn forseta. Veitir rými til gagnaöflunar Samkvæmt dagskrá velferðarnefndar stóð til að afgreiða málið úr nefnd til þriðju umræðu á fundi nefndarinnar í morgun en Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður nefndarinnar, segir í samtali við Vísi að hún hafi ákveðið að fresta afgreiðslunni og funda um málið á einum fundi til. Sá fundur verður haldinn strax að lokinni kjördæmaviku, þann 2. mars næstkomandi. Hún segir að beiðni hafi borist frá minnihlutanum um frekari gögn og gestakomur fyrir nefndina. Meirihlutinn hafi farið vandlega yfir þær beiðnir og henni hafi þótt rétt að gefa meira rými til öflunar gagna og eftir atvikum gestakoma. Engar efnislegar breytingar Þá hafi borist drög að nýju nefndaráliti í gærkvöldi og samkvæmt því verði frumvarpið skýrt betur hvað varðar svokallaðan tvöfaldan lás, sem gagnrýnendur frumvarpsins hafa sagt það fela í sér. Þá þurfi einnig að breyta gildistíma frumvarpsins, þar sem það sé frá síðasta þingi. Drögin hafi borist í gærkvöldi og henni hafi þótt rétt að gefa nefndinni meiri tíma til að fara yfir það. Drögin feli ekki í sér neinar efnislegar breytingar á frumvarpinu og markmið meirihlutans sé enn það sama.
Tenging almannatrygginga við launavísitölu Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira