Reyna aftur á morgun Samúel Karl Ólason skrifar 18. febrúar 2026 10:55 Frá Flórída, þar sem Orion-geimfari hefur verið komið fyrir á Space Launch System-eldflaug NASA. Þessi stæða á að koma fjórum geimförum á braut um tunglið og það mögulega í næsta mánuði. EPA/CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu gera aðra tilraun til að dæla eldsneyti á eldflaugina Space Launch System (SLS), sem á að nota til að senda geimfara til tunglsins á næstunni. Fyrst var það reynt í byrjun mánaðarins en þá fundust eldsneytislekar á eldflauginni og var Artemis 2 geimskotinu frestað.
Síðan þá hefur verið farið í endurbætur og viðgerðir og stendur því til að halda æfingu, sem gæti verið kölluð generalprufa, fyrir geimskotið sjálft. Þá er líkt eftir aðdraganda geimskots að nánast öllu leyti yfir nærri því fimmtíu klukkustunda tímabil. Er þetta gert til að reyna að tryggja að ekkert geti komið upp á þegar geimskotið sjálft á að eiga sér stað. Meðal annars verður um 2,6 milljón lítrum af ofurkældu vetni og súrefni inn á tanka SLS og haldin niðurtalning, eins og gert er í aðdraganda raunverulegs geimskots. Launch controllers have arrived at their consoles at @NASAKennedy to begin the second wet dress rehearsal for Artemis II.The tanking portion of the test will be streamed live to our YouTube channel on Feb. 19. Timely updates can be found on our blog: https://t.co/40PMWktQjO pic.twitter.com/0WeZ8uNqgj— NASA (@NASA) February 18, 2026 Ekki er búið að ákveða hvenær geimskotið sjálft verður en geimförunum verður ekki skotið af stað fyrr en generalprufa hefur tekist, samkvæmt upplýsingum á vef NASA. Það verður þó ekki fyrr en í fyrsta lagi þann 6. mars. Sjá einnig: Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Að þessu sinni stendur til að flytja fjóra geimfara sem eiga að fara á braut um tunglið, um borð í Orion-geimfari, og aftur til jarðar yfir tíu daga tímabil. Þetta verður í fyrsta sinn frá tímum Apollo-áætlunarinnar sem menn verða sendir til tunglsins. Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá skotpalli Artemis 2 í Kennedy-geimmiðstöðinni í Flórída. Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Nota á tunglið sem stökkpall lengra út í sólkerfið. Í grískri goðafræði er Artemis systir Apollos. Artemis 2 er eins og nafnið gefur til kynna, annað geimskotið í áætluninni. Um mitt ár 2027 á, samkvæmt áætlunum NASA, að lenda geimförum á tunglinu í fyrsta sinn frá desember 1972, þegar geimfararnir Gene Cernan og Harrison Schmitt urðu ellefti og tólfti maðurinn til að ganga á yfirborði tunglsins.
Bandaríkin Tunglið Artemis-áætlunin Geimurinn Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira