Svínar á Austurlandi með óheiðarleika til að koma sínum jarðgöngum að Jónína Brynjólfsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 06:00 Það er eitt að vera ósammála um forgangsröðun jarðgangaverkefna. Það er allt annað að fara með rangar eða villandi upplýsingar til að réttlæta hana. Nú liggur fyrir að yfirlýsingar innviðaráðherra um tímaramma Fljótaganga standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem Austurfrétt og Rúv hafa undir höndum frá Vegagerðinni og ráðuneytinu. Undirbúningur jarðganga er ekki kosningaloforð sem hægt er að hrinda í framkvæmd með yfirlýsingu á blaðamannafundi. Hann er margra ára ferli sem felur í sér jarðfræðirannsóknir, forhönnun, verkhönnun, mat á umhverfisáhrifum, skipulagsbreytingar, fjármögnun og útboð. Þetta veit ráðherra. Þetta veit Vegagerðin. Samt er þjóðinni talin trú um að Fljótagöng séu nánast handan við hornið, ef aðeins viljinn sé fyrir hendi.Þegar ráðherra talar með þessum hætti, gegn betri vitund, er hann ekki að upplýsa, hann er að segja ósatt.Á sama tíma hefur hann fært Fjarðarheiðargöng aftur í röðinni og kasta rýrð á undirbúning og stöðu þess verkefnis. Það er beinlínis ósanngjarnt og óheiðarlegt gagnvart Austurlandi. Fjarðarheiðargöng eru ekki bara hugmynd á teikniborðinu, þau eru fullhönnuð af Vegagerðinni, umhverfismat liggur fyrir og skipulagsbreytingar hafa verið samþykktar. Hundruðum milljóna hefur þegar verið varið í undirbúning. Alþingi hefur ítrekað markað þá stefnu að þau skuli vera næstu göng á Austurlandi og á Íslandi. Sveitarfélögin á svæðinu hafa staðið samhljóða að baki þeirri kröfu í áratug. Fjarðarheiðargöng eru ekki aðeins samgöngubót, þau eru öryggisinnviður og flóttaleið.Það sem er verst er að ráðherra hefur aðgang að sömu gögnum og við hin. Hann veit hversu langan tíma tekur að undirbúa og fjármagna jarðgöng. Hann veit að Fljótagöng eru á allt öðrum undirbúningsstað en Fjarðarheiðargöng. Samgönguáætlun á að vera faglegt, fyrirsjáanlegt tæki sem byggir á gagnsæi og trausti. Þegar ráðherra brýtur það traust með því að mála upp ranga mynd til að koma „sínum“ göngum framar, þá er hann ekki bara að færa til línu á blaði. Hann er að grafa undan trúverðugleika kerfisins. Er þetta kannski bara líka tittlingaskítur! Höfundur er forseti sveitarstjórnar Múlaþings Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónína Brynjólfsdóttir Múlaþing Jarðgöng á Íslandi Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Það er eitt að vera ósammála um forgangsröðun jarðgangaverkefna. Það er allt annað að fara með rangar eða villandi upplýsingar til að réttlæta hana. Nú liggur fyrir að yfirlýsingar innviðaráðherra um tímaramma Fljótaganga standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem Austurfrétt og Rúv hafa undir höndum frá Vegagerðinni og ráðuneytinu. Undirbúningur jarðganga er ekki kosningaloforð sem hægt er að hrinda í framkvæmd með yfirlýsingu á blaðamannafundi. Hann er margra ára ferli sem felur í sér jarðfræðirannsóknir, forhönnun, verkhönnun, mat á umhverfisáhrifum, skipulagsbreytingar, fjármögnun og útboð. Þetta veit ráðherra. Þetta veit Vegagerðin. Samt er þjóðinni talin trú um að Fljótagöng séu nánast handan við hornið, ef aðeins viljinn sé fyrir hendi.Þegar ráðherra talar með þessum hætti, gegn betri vitund, er hann ekki að upplýsa, hann er að segja ósatt.Á sama tíma hefur hann fært Fjarðarheiðargöng aftur í röðinni og kasta rýrð á undirbúning og stöðu þess verkefnis. Það er beinlínis ósanngjarnt og óheiðarlegt gagnvart Austurlandi. Fjarðarheiðargöng eru ekki bara hugmynd á teikniborðinu, þau eru fullhönnuð af Vegagerðinni, umhverfismat liggur fyrir og skipulagsbreytingar hafa verið samþykktar. Hundruðum milljóna hefur þegar verið varið í undirbúning. Alþingi hefur ítrekað markað þá stefnu að þau skuli vera næstu göng á Austurlandi og á Íslandi. Sveitarfélögin á svæðinu hafa staðið samhljóða að baki þeirri kröfu í áratug. Fjarðarheiðargöng eru ekki aðeins samgöngubót, þau eru öryggisinnviður og flóttaleið.Það sem er verst er að ráðherra hefur aðgang að sömu gögnum og við hin. Hann veit hversu langan tíma tekur að undirbúa og fjármagna jarðgöng. Hann veit að Fljótagöng eru á allt öðrum undirbúningsstað en Fjarðarheiðargöng. Samgönguáætlun á að vera faglegt, fyrirsjáanlegt tæki sem byggir á gagnsæi og trausti. Þegar ráðherra brýtur það traust með því að mála upp ranga mynd til að koma „sínum“ göngum framar, þá er hann ekki bara að færa til línu á blaði. Hann er að grafa undan trúverðugleika kerfisins. Er þetta kannski bara líka tittlingaskítur! Höfundur er forseti sveitarstjórnar Múlaþings
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar