Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Árni Sæberg skrifar 17. febrúar 2026 11:25 Vegurinn sem um ræðir liggur frá Skálholtsvegi að Hvítá. Já.is Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá.
Í ákvörðun Hæstaréttar þess efnis, sem tekin var síðastliðinn fimmtudag og birt í dag, segir að málið lúti að kröfu landeigendanna um að felld verði úr gildi ákvörðun sýslumannsins á Suðurlandi og lagt fyrir hann að leggja lögbann á Finn Harðarson, leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá, þess efnis að honum verði bannað að aka á vélknúnum ökutækjum um einkaveg þeirra í landi þeirra, Iðu I og Iðu II í Bláskógarbyggð, eða fela öðrum slíkan akstur og rjúfa til þess keðjulæsingar á veghliði. Nokkurra ára deilur Landeigendur og Finnur hafa í nokkur ár deilt um hin ýmsu mál sem snúa að veiði í Iðu og Stóru-Laxá. Til að mynda greindi Vísir frá því árið 2023 að Finnur hefði miklar áhyggjur af stórfelldu laxadrápi í Iðu. Veiðisvæðið Iða, kennt við samnefndan bæ á vinstri bakka Hvítár, nær frá ármótunum þar sem Stóra- og Litla Laxá sameinast Hvítá og niður að brúnni yfir ána. Þar gengur allur lax um sem leitar upp í Stóru-Laxá og því á Finnur nokkurra hagsmuna að gæta. Fimm hundruð metra vegur Í ákvörðun Hæstaréttar segir að umræddur vegur liggi frá Skálholtsvegi, þjóðvegi númer 31, um 500 metra frá Iðubrú við Hvítá til suðausturs og sé nefndur Veiðivegur. Leyfisbeiðendur séu skráðir eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð og félagsmenn í Stóru-Laxárdeild, sem starfi sem deild innan Veiðifélags Árnesinga. Gagnaðili sé fyrirsvarsmaður Bergsnasar ehf. sem sé leigutaki veiðiréttar í Stóru-Laxá til tíu ára samkvæmt samningi við Stóru-Laxárdeild 13. desember 2021. Með úrskurði Landsréttar hafi úrskurður héraðsdóms um að hafna því að fella úr gildi ákvörðun sýslumanns um höfnun lögbannskröfu landeigandanna verið staðfestur. Í úrskurði Landsréttar hafi meðal annars komið fram að verulegur ágreiningur væri til staðar um ráðstöfun stangveiði á því svæði þar sem jarðir landeigendanna liggja, en Finnur leiddi veiðirétt sinn af leigusamningi við Stóru-Laxárdeild. Sá ágreiningur væri ekki til lykta leiddur og ekki yrði ráðið af gögnum málsins hvort og með hvaða hætti Finnur gæti komist að þeim veiðistöðum sem féllu undir samninginn án þess að fara um þann veg sem krafa landeigendanna lyti að. Að því virtu hafi hvorki verið talið að landeigendurnir hefðu sannað né gert sennilegt að háttsemi Finns bryti eða myndi brjóta gegn lögvörðum rétti þeirra í skilningi laga um kyrrsetningu, lögmann og fleira. Fordæmisgefandi um skilyrði lögbanns Þá segir að landeigendur byggi á því að kæruefnið varði mikilsverða almannahagsmuni og hafi fordæmisgildi um skilyrði lögbanns. Þannig skuli sýslumaður meta hagsmuni aðila til bráðabirgða, sem sýslumaður og dómstólar hafi ekki gert. Þeir byggi á því að úrskurður Landsréttar sé þannig bersýnilega rangur að efni til. Hafi Landsréttur verið í villu um grundvöll lögbanns. Þá sé í úrskurði Landsréttar vísað til Stóru-Laxárdeildar veiðifélags Árnesinga sem veiðifélags þótt deildin sé ekki slíkt félag að lögum. „Að virtum gögnum málsins verður að líta svo á að dómur í því geti haft fordæmisgildi um skilyrði lögbanns. Beiðni um kæruleyfi er því samþykkt,“ segir í niðurstöðu Hæstaréttar.
Dómsmál Jarða- og lóðamál Stangveiði Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira