Vara við því að færð spillist í kvöld Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2026 09:55 Það að enginn snjór sé fyrir mun hjálpa í kvöld og í fyrramálið en þó er von á skafrenningi og blindu. Vísir/Anton Brink Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir útlit fyrir að færð muni spillast í kvöld. Syðst á landinu stefni í hríðarveður og skafrenning og að ekki muni rofa til að gagni fyrr en upp úr hádegi á morgun.
Veðurstofan hefur spáð hríðarbyl á Suðurlandi í nótt og framan af morgundegi. „Enn er nokkur óvissa um staðsetningu úrkomubakkanna og er fólk hvatt til að fylgjast vel með spám,“ sagði í hugleiðingum veðurfræðings í morgun. Sjá einnig: Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Í ábendingu til vegfarenda sem Einar sendi út fyrir hönd Vegagerðarinnar í morgun segir að frá Sandskeiði og austur yfir Hellisheiði sé reiknað með allhvössum vindi og blindu fram á kvöld og fram yfir morgunumferðina í fyrramálið. Syðst á landinu verði hríðarveður og skafrenningur og sé hætt við að vegir teppist seint í kvöld og að ekki rofi til að gagni fyrr á eftir hádegi á morgun. Einnig var rætt við Einar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði lægð suðaustur af landinu líklega til að valda þessu veðri í kvöld. Það hjálpar að enginn snjór er fyrir og því eru minni líkur á ófærð fyrir vikið. „En það er blint og mörgum finnst erfitt að keyra þegar það er skafrenningur,“ sagði Einar. Hann segir að þetta muni hefjast í kvöld og ágerast eftir klukkan tíu. Verst verði ástandið seint í nótt en það muni vara fram yfir morgunumferðina á morgun. Enn sé þó nokkur óvissa um hvernig veðrið muni endast. Einar segir að á höfuðborgarsvæðinu og suður með sjó sé spáð tíu til fimmtán sentímetra snjókomu. Þetta sé þó þurr snjór sem falla muni á þurrt yfirborð, sem gæti falið í sér minni hálku en annars. Hægt er að hlusta frekar á Einar í spilaranum hér að neðan.
Veður Umferð Færð á vegum Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Sjá meira