Fékk sig fullsaddan í Noregi og vann sögulegt gull fyrir Brasilíu Valur Páll Eiríksson skrifar 14. febrúar 2026 15:31 Braathen fagnaði vel í dag. Christian Petersen/Getty Images Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda.
Braathen á norskan föður en brasilíska móður og er fæddur og uppalinn í Osló. Hann tók í fyrsta sinn þátt á HM í alpagreinum 18 ára gamall árið 2018 fyrir skíðalið Bærum og keppti fyrir Noreg á Vetrarólympíuleikunum árið 2022 í Peking. Braathen lenti hins vegar í útistöðum við norska skíðasambandið vegna styrktarsamninga og tilkynnti í október 2023 að hann væri hættur skíðaiðkun, degi áður en heimsbikarmótaröð þess tímabils hófst, á tilfinningaríkum blaðamannafundi. Í mars árið eftir tilkynnti hann að hann væri hættur við að hætta. Hann myndi keppa fyrir Brasilíu í stað Noregs og ári eftir upprunalegu yfirlýsinguna, í október 2024, mætti hann aftur til leiks á heimsbikarmótaröðina, í þetta sinn undir fána Brasilíu. Hann hefur vakið athygli á leikunum í ár heima fyrir, enda ekki á hverjum degi sem Brassar eiga frambærilegan skíðamann. Fótboltastjörnur þar suðurfrá sendu Braathen góðar kveðjur fyrir keppni dagsins og hann stóð fyrir sínu. Fyrri ferð hans var á meðal þeirra betri sem sést hafa og var hann með tæplega sekúndu forskot á næstu keppendur fyrir síðari ferð dagsins í stórsvigi í Stelvio-brekkunni í Ölpunum. Síðari ferðin var ekki sú besta í brekkunni eftir hádegið en forskotið frá fyrri hlutanum skilaði Braathen Ólympíugulli, því fyrsta í sögu Brasilíu.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Brasilía Noregur Mest lesið Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira