Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 13:54 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók við embættinu af Ingu Sæland sem fyrst mælti fyrir frumvarpinu á meðan hún fór fyrir málaflokknum. Vísir/Vilhelm Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að svo virðist sem misskilnings hafi gætt í umræðu um frumvarp Flokks fólksins er varðar tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Málið hefur sætt mikilli gagnrýni en Ragnar vill meina að sú gagnrýni sé að miklu leyti byggð á misskilningi. Þegar sé sleginn varnagli í frumvarpinu sem komi í veg fyrir hinn svokallaða „tvöfalda lás“ sem hefur sætt gagnrýni.
Þetta segir Ragnar Þór í aðsendri grein á Vísi í dag þar sem hann leitast við að svara þeirri gagnrýni sem fram hefur komið á málið og greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Kjarni málsins, sem hafi verið eitt af lykilmálum Flokks fólksins, sé að tryggja að lífeyrir almannatrygginga fylgi launaþróun. „Við gerum það með því að tengja lífeyrir við opinbera mælikvarðann á launaþróun, sem er launavísitala Hagstofu Íslands. Þannig stöðvum við kjaragliðnun milli lífeyris og launa,“ skrifar Ragnar Þór meðal annars. Sem svar við framkominni gagnrýni á frumvarpið vísar ráðherrann meðal annars í grein þeirra Gylfa Zoega og Axels Hall, þar sem þeir lýstu mögulegum „hagstjórnarmistökum“ sem væru í uppsiglingu með frumvarpinu. Í greininni segir meðal annars um frumvarpið að það muni „sjálfkrafa bæta kjör bótaþega umfram kjör launafólks. „Algengt er að þróun launa sé ósjálfbær og leiðréttist síðan með verðbólgu sem fólk á bótum fær þá bætta. Bætur almannatrygginga hækka þá vegna launahækkana og síðan enn meira þegar verðbólga eykst, verðbólgan minnkar kaupmátt launafólks en ekki kaupmátt bótagreiðslna. Bótaþegar fá þannig bæði kjarabætur sem innstæða er fyrir og einnig innstæðulausar kjarabætur á meðan kaupmáttur launafólks eykst einungis ef innstæða er fyrir þeim,“ segir meðal annars í lokaorðum greinar Gylfa og Axels. Þetta segir Ragnar Þór hins vegar að byggi á misskilningi. „Þarna er á ferðinni misskilningur um efni frumvarpsins. Frumvarpið leggur ekki til að á hverju ári verði horft á 12 mánaða þróun beggja vísitalna og sú hærri lögð til grundvallar. Heldur leggur frumvarpið til að miðað verði við grunnpunkt, stöðu vísitölu launa í júní 2025, og þannig jafnar grunnpunkturinn út tvöfalda lásinn,“ skrifar Ragnar og heldur áfram. Málið var meðal annars til umfjöllunar í kvöldfréttum Sýnar í gær, þar sem bæði fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands lýstu efasemdum um málið. „Þessi aðferð tryggir að ekki eigi sér stað sá tvíverknaður sem greinarhöfundarnir óttast, þ.e. að lífeyrir hækki fyrst vegna launahækkana á almennum markaði og svo vegna verðbólgu. Lífeyrir mun fylgja þeirri vísitölu sem reynist hærri. Einfalt dæmi mætti hugsa sem svo: Vísitala neysluverðs hækkar um 10% á ári 1, en launavísitalan um 0%. Á ári 2 hækkar svo Launavísitalan um 10% en vísitala neysluverðs um 0%. Af málflutningi gagnrýnenda í fjölmiðlum undanfarna daga mætti halda að lífeyrir almannatrygginga ætti þá að hækka um 10% tvö ár í röð, en samkvæmt frumvarpinu myndi lífeyrir hækka um 10% fyrsta árið og 0% seinna árið.“ Þá vísar hann í grein sinni í textabrot úr greinargerð frumvarpsins þar sem útskýrt sé hvernig eigi að koma í veg fyrir mögulegar tvöfaldar hækkanir sem hinn svokallaði tvöfaldi lás geti haft í för með sér. „Til þess að koma í veg fyrir það er í frumvarpinu lagt til að miðað sé við upphafspunkt í júní 2025 þannig að leiðrétting miðist við mældar vísitölur launa og neysluverðs sem Hagstofa Íslands birtir til júnímánaðar yfirstandandi árs. Þannig mun uppsöfnuð hækkun greiðslna almannatrygginga aldrei verða minni en hækkun framangreindra vísitalna frá júní 2025,“ segir um þetta í greinargerð frumvarpsins.
Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Efnahagsmál Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Sjá meira