Örláti tannálfurinn Zayn aldrei ástfanginn af Gigi Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. febrúar 2026 11:50 Zayn Malik og Gigi Hadid meðan allt lék í lyndi í byrjun sambands þeirra, áður en þau eignuðust dótturina Khiu og hættu svo saman. Getty/Mike Coppola Popparinn Zayn Malik sagðist í nýlegu viðtali aldrei hafa verið ástafanginn af barnsmóður sinni, ofurfyrirsætunni Gigi Hadid, en þau voru saman í sex ár. Zayn rifjaði upp í sama viðtali skammirnar sem hún veitti honum fyrir að hafa dekrað dóttur þeirra með hárri fjárhæð frá tannálfinum.
Zayn Malik er þekktastur fyrir að hafa verið í strákasveitinni One Direction en hann var fyrsti meðlimurinn til að yfirgefa sveitina 2015. Eftir það hefur hann átt misgóðu gengi að fagna á sólóferli sínum. Gigi og Zayn byrjuðu að hittast 2015.Vísir/Xposure Malik var í löngu viðtali hjá Alex Cooper í hlaðvarpinu Call Her Daddy sem kom út 11. febrúar síðastliðinn og ræddi þar fjölskyldu sína, ástarsambönd og fleira. Cooper spurði popparann hvort hann stæði hann við yfirlýsingu frá 2024 þar sem hann sagði: „Ég veit ekki hvort ég hafi nokkurn tímann verið ástfanginn í raun og veru“. „Já, skilningur minn á ást er í stöðugri þróun,“ svaraði popparinn. „Á þessum tíma hélt ég kannski að þetta væri ást en eftir því sem ég varð eldri uppgötvaði ég að sennilega var það ekki svo. Kannski var það losti. Kannski var það þetta, kannski var það hitt. Mér líður eins og þetta hafi ekki verið ást,“ sagði popparinn. Malik var í sambandi með Gigi Hadid frá 2015 til 2021 og eignaðist með henni dótturina Khiu árið 2020. Mikið fór fyrir sambandinu, þau voru saman á forsíðu Vogue og lék Gigi í æsilegu tónlistarmyndbandi við lagið „Pillowtalk“ með popparanum. „Bara svo það komi fram þá mun ég alltaf elska G því hún er ástæðan fyrir því að barnið mitt er á Jörðinni og ég ber mikla virðingu fyrir henni. Ég mun alltaf elska hana en ég veit ekki hvort ég var nokkurn tímann ástfanginn af henni.“ Sambandinu lauk hins vegar á slæmum nótum því móðir Gigi, Yolanda, sakaði Zayn um að hafa hrint sér og ausið fúkyrðum yfir hana. Var Malik kærður í fjórum liðum fyrir áreitni en mótmælti kærunni ekki (e. no contest plea) og var dæmdur í 360 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að sækja námskeið um reiðistjórnun og heimilisofbeldi. Sjá einnig: Zayn kærður fyrir að hafa beitt mömmu Gigi ofbeldi Síðan parið hætti saman hefur Gigi verið í sambandi með leikaranum Bradley Cooper og bárust nýlega fréttir af tilvonandi trúlofun þeirra. Minna hefur farið fyrir ástarmálum Zayns en hann sást þó á stefnumóti með leik- og söngkonunni Selenu Gomez árið 2023 en það rann út í sandinn. Tannálfurinn aðeins of örlátur Malik ræddi fleira í viðtalinu, þar á meðal reynslu sína af því að vera faðir hinnar fimm ára Khai. Dóttirin byggi við annan raunveruleika en önnur börn og hann ætti það til að dekra hana. „Pabbi hennar er poppstjarna. Mamma hennar er fyrirsæta. Ákveðnir hlutir í lífi hennar endurspegla ekki alltaf skilning annarra á raunveruleikanum,“ sagði Malik í viðtalinu. „Svo ég gaf henni aðeins og mikinn pening frá tannálfinum,“ bætti hann við brosandi. Þegar Cooper spurði hve mikinn pening, svaraði Zayn að það hefðu verið fimm hundruð Bandaríkjadalir (rúmar sextíu þúsund krónur). Zayn Malik og kærasta hans Gigi Hadid.GLAMOUR/GETTY „Þetta er fyrsta tönninn hennar og mamma hennar skammaði mig fyrir það. Í enda dagsins vann ég af mér rassgatið og ég ætti að geta gefið krakkanum mínum það sem ég vil gefa henni,“ sagði hann. Cooper viðurkenndi að hún tæki hlið Hadid í málinu og spurði Malik hvað hann hyggðist gera þegar hún myndi missa næstu tönn. Svaraði popparinn þá að hún fengi fimm dali en fyrsta tönnin væri sér á parti. Hann ætlaði sér meira að segja að ramma hana inn. Hægt er að hlusta á viðtal Cooper við Malik í heild sinni að neðan:
Ástin og lífið Bandaríkin Bretland Hollywood Tengdar fréttir Selena Gomez á stefnumóti með Zayn Malik Leik- og söngkonan Selena Gomez og tónlistarmaðurinn Zayn Malik eru sögð vera að máta sig við hvort annað. Nýlega sást til þeirra á stefnumóti í New York sem lauk með kossi. 28. mars 2023 11:00 Stúlkubarn Gigi Hadid og Zayn Malik komið í heiminn Zayn Malik greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í nótt. 24. september 2020 07:47 Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Sjá meira
Selena Gomez á stefnumóti með Zayn Malik Leik- og söngkonan Selena Gomez og tónlistarmaðurinn Zayn Malik eru sögð vera að máta sig við hvort annað. Nýlega sást til þeirra á stefnumóti í New York sem lauk með kossi. 28. mars 2023 11:00
Stúlkubarn Gigi Hadid og Zayn Malik komið í heiminn Zayn Malik greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í nótt. 24. september 2020 07:47