Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 20:26 Fjöldi starfsmanna saman komnir fyrir fundinn. Vísir/Lýður Valberg Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans kom saman í dag og fundaði um starfsaðstæður þeirra. Það krefst þess að framkvæmdar verði úttektir á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga.
180 starfsmenn bráðamóttöku Landspítalans komu saman á Grand hótel í dag. Í kjölfar fundarins sendu þau frá sér ályktun þar sem þau gagnrýna stjórnvöld fyrir að hafa ekki brugðist nægilega vel við. Landspítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en ár. „Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu. Þetta hefur lengi verið opinbert og viðurkennt af stjórnendum spítalans, embætti landlæknis og heilbrigðisyfirvöldum, án þess að brugðist hafi verið við með fullnægjandi hætti,“ segir í ályktuninni. Í þeim 36 plássum á bráðamóttökunni sé daglegur fjöldi innlagðra yfir hundrað, sem sé langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfi þola. Til lengri tíma hafi bráðamóttakan því verið nýtt til að sinna innlögðum sjúklingum sem ættu að vera komnir á viðeigandi legudeildir. Þau benda á að fjögur ár séu liðin síðan landlæknir, sem þá var Alma Möller, núverandi heilbrigðisráðherra, uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar. Taldi hún réttast að loka deildinni en það væri ekki raunhæft þar sem hún væri sú eina sinnar tegundar á landinu. „Þessar alvarlegu yfirlýsingar landlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað.“ Sjúklingar eins og hráviðri á göngunum Starfsfólkið segir einangrun ómögulega, ekki sé hægt að tryggja öryggi órólegra eða óstöðugra sjúklinga og segir súrefniskúta ásamt öðrum búnaði vera eins og hráðviðri á göngunum sem sé augljós bruna- og sprengihætta. „Þetta er alvarleg öryggisógn fyrir starfsfólk og sjúklinga, og með þessum fjölda sjúklinga eru vinnuaðstæður starfsfólks fullkomlega óboðlegar,“ segir í ályktuninni. Fundurinn var boðaður eftir að í ljós kom að átta starfsmenn bráðamóttökunnar hefðu verið útsettir fyrir berklasmitum. Vert er að taka fram að þeir höfðu getað smitast fyrir nokkrum árum. Atli Dagur Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur sem meðal þeirra sem greindust með berkla, segir smitið hafa áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu hans. „Starfsfólk og sjúklingar eru sett í aðstæður þar sem hætta á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum er augljós og viðvarandi,“ segir í ályktuninni. „Þetta undirstrikar afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður eru ekki í samræmi við lög og reglur. Aðgerðaleysi í uppbyggingu og fjárfestingu í heilbrigðisinnviðum hefur skapað kerfisbundinn vanda sem nú birtist með skýrum og hættulegum hætti á bráðamóttökunni.“ Krefjast aðgerða Starfsfólkð krefst þess að þeir aðilar sem bera lögbundna ábyrgð bregðist strax við og fylgi eftir athugasemdum, úttektum og nefndarniðurstöðum sem áður hafa komið fram. Krafist er þess af Embætti landlæknis að fylgja úrbótum eftir af festu að þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar, Vinnueftirlitinu að framkvæma heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðast við brotum á vinnuverndarlögum og Heilbrigðiseftirlitinu að taka út aðstæður með tilliti til hollustuhátta og smitvarna. Þau krefjast þess einnig að Eldvarnaeftirlitið fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla, Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga og að heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku.
Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira