Börnunum verður að bjarga Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 09:00 Vegferð mannsins í gegnum lífið gengur sjaldan áfallalaust fyrir sig. Margir verða fyrir heilsubresti líkamlegum og/eða andlegum.Þá er gott að geta reitt sig á góða og skilvirka heilbrigðisþjónustu. Við Íslendingar berum þá gæfu að eiga gott heilbrigðiskerfi sem er fjármagnað með sköttunum okkar og því ættu langflestir notendur fengið þjónustu nær gjaldfrítt. Þetta kallast jafnaðarkerfi. En það er ekki alveg svo gott því biðlistar eru viðvarandi vandamál en þegar bið er á greiningu og meðferð getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir þjónustuþega. Hér ætla ég einkum að fjalla um biðlista barna í heilbrigðiskerfinu því það er svo mikilvægt að þau fái viðeigandi þjónustu strax en bíði ekki í mörg ár. Það getur haft óbætanleg áhrif á þroska þeirra og jafnvel fullorðinsár Biðlisti, eins hann er skilgreindur á heimasíðu embættis landlæknis, á við um samræmda, rafræna skráningu yfir einstaklinga sem hafa verið skilgreindir í þörf fyrir ákveðna, sérhæfða heilbrigðisþjónustu, s.s. rannsóknir, mat, greiningu, vistun eða meðferð.Hér er átt er við fyrirfram ákveðna þjónustu en ekki bráðameðferð eða meðferð vegna lífsógnandi sjúkdóma. Barn gæti þurft að bíða I nokkur ár eftir þjónustu Með biðtíma er átt við þann tíma sem líður frá því að skjólstæðingur hefur samband við heilbrigðisþjónustu út af einkennum eða frá því að þörf fyrir viðkomandi þjónustu er greind. Almenn viðmið embættis landlæknis eru: Samband við heilsugæslustöð samdægurs. Viðtal við heilsugæslulækni innan 5 daga. Skoðun hjá sérfræðingi innan 30 daga Aðgerð/meðferð hjá sérfræðingi innan 90 daga frá greiningu. En raunveruleikinn er annar og um það geta flestir landsmenn vitnað, sem ekki eru með lífsógnandi sjúkdóma. Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga (lög nr. 74/1997) ber læknum að gefa sjúklingum sínum skýringar á því hvers vegna bið er eftir aðgerð eða annarri meðferð. Þá er þeim enn fremur skylt að veita upplýsingar um áætlaðan biðtíma og þá möguleika sem eru á að fá aðgerðina/meðferðina framkvæmda fyrr annars staðar. Á þessu er misbrestur. Samkvæmt þessum sömu lögum á skjólstæðingurinn rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er að veita á hverjum tíma. Ég tel að langflestir landsmenn séu ánægðir með þjónustuna þegar þeir loksins fá hana, enda búum við að því að eiga heilbrigðistarfólk í heimsklassa, sem hafa fengið góða menntun bæði hérlendis og erlendis sem og starfsreynslu.En eitthvað er að klikka! Sem dæmi um starfstéttir sem sinna börnum: ·Geðlæknar og sálfræðingar (langur biðlisti eftir greiningum og meðferðum. Þetta á við um ýmsa taugaþroskaröskun eins ADHD, einhverfu og tengdar greiningar). ·Talmeinafræðingar (langur biðlisti eftir tungumála- og talþjónustu). Listin(n) að bíða Biðtíminn í þessum sérgreinum er allt að 1-4 ár, varlega áætlað, og þúsundir bíða eftir greiningu og meðferð eða um 3-5000 börn og ungmenni. Segjum að það séu 4000 börn en hvað þýðir það? Sá fjöldi gæti rúmast í sex 500 nemanda grunnskólum og tveimur leikskólum sömuleiðis með 500 börnum. Þessi staðreynd er svolítið svakaleg, sérstaklega í ljósi þess að þessi bið getur haft eigum að veita því skjól með öllum ráðum og skilvirka þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Og mér er nokkuð sama hvernig skipting kostnaðar á milli ríkis og sveitarfélaga er, þessi tvö kerfi verða að finna út úr því ef það er bitbein. Það er list að bíða en biðlist(n) er orðinn ansi langur. Foreldrar barna í mikilli þjónustuþörf hafa ekki lyst á að bíða lengur, Viðmið embættis landslæknis eiga ekki að vera orðin tóm. Aðgerðir, NÚNA, takk! Börnunum verður bjarga. Á morgun gæti það verið of seint. Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar