Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2026 17:34 Alexander Petersson óskar hér syni sínum, Tómasi Blöndal-Petersson, til hamingju með samninginn við Val. Valur Fótbolti Knattspyrnudeild Vals hefur gert tveggja ára samning við markmanninn Tómas Blöndal-Petersson en félagið segir frá þessu á miðlum sínum.
Tómas, sem er fæddur árið 2009, er uppalinn Valsari og einn efnilegasti markvörður landsins. Hann hefur leikið fyrir bæði U17 og U18 ára landslið Íslands, auk þess sem hann hefur fengið mínútur með meistaraflokki Vals í vetur og staðið sig vel. Tómas er sonur handboltagoðsagnarinnar Alexanders Petersson sem kláraði sjálfur ferilinn hjá Val eftir að hafa spilað sem atvinnumaður og verið lykilmaður í íslenska handboltalandsliðinu. Móðir hans, Eivor Pála Blöndal, spilaði líka lengi með handboltaliði Vals. Alexander spilaði síðast með Val á síðasta tímabili en á árunum 2005 til 2021 skoraði hann 725 mörk í 186 landsleikjum fyrir Ísland. Eivor Pála spilaði sjálf þrettán landsleiki fyrir Ísland. Eldri bróðir Tómasar, hinn 21 árs gamli Lúkas Petersson, er einnig markvörður en hann spilar með TSG 1899 Hoffenheim í Þýskalandi og er að verja mark varaliðs félagins í þýsku C-deildinni á þessari leiktíð. „Félagið er afar ánægt með að Tómas hafi ákveðið að skrifa undir sinn fyrsta samning við Val, enda er það skýr stefna félagsins að leggja ríka áherslu á þróun og uppbyggingu ungra leikmanna. Tómas hefur sýnt stöðugar framfarir, faglegt hugarfar og sterkan karakter, eiginleika sem skipta sköpum fyrir leikmenn sem stefna langt,” sagði í fréttinni á miðlum Vals. „Við erum afar ánægð með að tryggja okkur undirskrift Tómasar. Hann er markmaður með mikla hæfileika og sterkan karakter og við höfum mikla trú á honum. Við hlökkum til að vinna áfram náið með honum og sjá hann halda áfram að þróast og bæta sig á næstu árum,” sagði Gareth Owen, tæknilegur stjórnandi knattspyrnudeildar Vals. View this post on Instagram A post shared by Valur FC (@valurfc)
Besta deild karla Valur Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira