Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 7. febrúar 2026 10:17 Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis undirrituðu nýja samninginn. Magnús Hlynur Hreiðarsson Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. á Selfossi var haldinn í vikunni. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis, nýjan fimm ára þjónustusamning milli Árborgar og félagsins. Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi og öflugu samstarfi aðila.
Á fundinum voru einnig þrír félagsmenn sæmdir æðstu viðurkenningu félagsins, sem er „Heiðursfélagar Sleipnis” fyrir ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Þau eru Þórdís Ólöf Viðarsdóttir, sem var formaður félagsins 2010–2012 og leiddi félagið þegar bygging reiðhallarinnar hófst og fór fram. Hún er í dag gjaldkeri reiðhallarnefndar og hefur sinnt reikningum, uppgjörum og ársskýrslum Sleipnishallar af mikilli nákvæmni og ábyrgð síðan 2016. Auk þess var hún gjaldkeri Sleipnis á árunum 2009-2010 og er ötull sjálfboðaliði í störfum félagsins. Svo er það Guðmundur Árnason en umsögnin um hann er: „Fyrirmynd í sjálfboðaliðastarfi og ávallt tilbúinn að leggja hönd á plóg í fjölbreyttum verkefnum á vegum félagsins. Hefur lagt til tæki og tól þegar þörf hefur verið á”. Að síðustu eru það eiginkona Guðmundar, Ragna Gunnarsdóttir en umsögnin um hana er þessi: „Mjög virk í nefndarstörfum, m.a. í skemmtinefnd, kvennakvölds- og kvennareiðsnefnd. Formaður reiðhallarnefndar og afar liðtæk í fjölbreyttu sjálfboðaliðastarfi. Veigrar sér aldrei við að leggja hönd á plóg þegar verkefni kalla”. Auk þess hafa Guðmundur og Ragna stutt við félagið á ýmsan hátt í gegnum fyrirtæki sitt Baldvin & Þorvald um langt árabil. Berglind Sveinsdóttir formaður ásamt Heiðursfélögum Sleipnis 2026 en það eru Guðmundur Árnason, Ragna Gunnarsdóttir og Þórdís Ólöf Viðarsdóttir.Magnús Hlynur Hreiðarsson Breytingar á stjórn Solveig Pálmadóttir ákvað að gefa ekki kost á sér áfram í stjórn. Elísabet Sveinsdóttir, sem starfað hefur í aðalstjórn síðustu tvö ár, bauð sig ekki fram áfram í aðalstjórn en gaf kost á sér í varastjórn og var kjörin. Formaður, Berglind Sveinsdóttir, og Bryndís Guðmundsdóttir buðu sig fram til áframhaldandi setu og voru báðar endurkjörnar. Tvö framboð bárust í aðalstjórn og voru Linda Björgvinsdóttir og Guðmundur Árnason kjörin. Ný stjórn Sleipnis 2026 er svona: Aðalstjórn:• Berglind Sveinsdóttir – formaður• Bryndís Guðmundsdóttir – meðstjórnandi• Anna Björg Níelsdóttir – meðstjórnandi• Linda Björgvinsdóttir – meðstjórnandi• Guðmundur Árnason – meðstjórnandi
Árborg Hestar Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira