Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 11:34 Myndin hefur verið mikið til umfjöllunar í Noregi í dag. Skjáskot af vef VG Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein.
Maxwell situr nú í fangelsi en hún var árið 2021 dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot. Hún var dæmd fyrir að finna og tæla unglingsstúlkur fyrir Epstein að brjóta á og tók hún þátt í einhverjum brotanna. Myndirnar voru teknar í New York í september 2012, á viðburði á vegum Clinton Global Initative, stofnunar Bills Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Meðal þeirra miðla sem hafa birt myndirnar eru VG og Aftonposten í Noregi. Þær sýna krónprinsessuna ræða við Maxwell en á milli þeirra stendur Dorrit Moussaieff. Samræður þeirra stóðu yfir, samkvæmt VG, í um tvær mínútur. Norskir fjölmiðlar hafa eftir talsmönnum konungsfjölskyldunnar að Mette-Marit muni ekki eftir því að hafa hitt Maxwell eða talað við hana. Maxwell stofnaði árið 2012 umhverfissamtökin TerraMar Project og þau samtök unnu með stofnun Clinton-fjölskyldunnar. Árið 2013 flutti Maxwell erindi á Hringborði Norðurslóða í Hörpu en það erindi snerist um TerraMar. Samtökin lögðu upp laupana árið 2019, eftir að Epstein, sem hafði verið fjárlagslegur bakhjarl samtakanna, svipti sig lífi í fangelsi. Árið 2020 sagðist Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, og eiginmaður Dorritar, ekki hafa þekkt vel til Maxwell þegar hún var fengin til að ávarpa Hringborðið. Þau hafi þó hist í samkvæmi í New York sama ár þar sem af þeim náðist ljósmynd og birt var í erlendum fjölmiðlum. „Hún talaði á Arctic Circle um hafið. Að öðru leyti hef ég engin tengsl við hana og hef ekki hitt hana nema á þessu samkvæmi í New York og þegar hún talaði á Arctic Circle. Epstein hef ég aldrei hitt,“ sagði Ólafur. Bregður nokkrum sinnum fyrir í skjölunum Dorrit og Ólafi bregður fyrir í Epstein-skjölunum svokölluðu. Minnst var á þau í tölvupósti sem sendur var til Epsteins. Rithöfundurinn Deepak Chopra sagðist í póstinum vera í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum og tók fram að forsetahjónin fyrrverandi væru þar. Þá er Dorrit einnig nefnd í pósti sem Maxwell sendi í september 2011 til manns sem heitir Leon. Þar segist Maxwell hafa rætt við Dorrit og að hún hafi sagt sér að Leon væri í leit að nýjum stjórnarmanni og sagðist geta aðstoðað hann við það. Ekki er hægt að útiloka að hér sé vísað til annarrar konu sem beri sama nafn og forsetafrúin fyrrverandi. Í póstinum heldur Maxwell áfram að lýsa ráðgjafafyrirtæki sínu og hvernig hún hafi áður hjálpað fyrirtækjum að finna stjórnarmenn en ekki er aftur minnst á Dorrit. Þá kom nafn Dorritar einnig fram í tengiliðaskrá Epsteins sem var fyrst opinberuð árið 2019. Þá sagði Dorrit í samtali við DV að hún ætti marga sameiginlega vini með Epstein og þau hefðu verið nágrannar um tíma. „Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhvern tímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja. Það er möguleiki á því að á einhverjum tímapunkti hafi hann verið með símanúmerið mitt,“ sagði Doritt í svari við fyrirspurn DV um það hvort hún kunni að vera í símaskránni umræddu. Hún sagði jafnframt að hún hafi ekki orðið vitni að neinu óvenjulegu í hegðun Epstein. „Það var ekkert furðulegt við hann.“ Epstein bjó um tíma í Bretlandi en þá vann hann fyrir Douglas Leese, breskan auðjöfur með umfangsmiklar tengingar í hergagnaiðnaði þar í landi og við yfirvöld. Leese réði Epstein sem ráðgjafa. Leese er sagður hafa kynnt Epstein fyrir öðrum breskum auðjöfrum og fyrir nýjum hæðum ríkisdæmis. Að endingu slitnaði vinskapur þeirra þegar Leese sakaði Epstein um að hafa eytt peningum hans óhóflega.
Mál Jeffrey Epstein Noregur Kóngafólk Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Sjá meira