Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 18:10 Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld. Maður sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Garðabæ á föstudagskvöld kveðst þakklátur fyrir að vera á lífi og segir að hugrakkur vegfarandi hafi ekki hugsað sig tvisvar um áður en hann skarst í leikinn. Meintir árásarmenn eru þrír og allir undir lögaldri.
Við hittum þolandann á vettvangi árásarinnar og ræðum við hann um þessa erfiðu lífsreynslu í kvöldfréttum Sýnar. Nýtt samræmt verklag við brottvísun brotahópa frá EES-ríkjunum verður beittasta vopn stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi, að mati sérfræðings hjá lögreglunni. Dómsmálaráðherra kynnti í morgun stefnu og aðgerðir sem ráðist verður í. Enn eitt konunglega hneykslið skekur norsku þjóðina en samband krónprinsessunnar og Jeffrey‘s Epstein reyndist mun meira en almenningur hafði gert sér grein fyrir. Í dag var sonur hennar hnepptur í gæsluvarðhald vegna meintra ofbeldisbrota. Við ræðum við Íslending í Osló sem segir ekki um annað rætt en konungsfjölskylduna í Noregi þessa dagana. Laufey Lín hreppti í gær sín önnur Grammy-verðlaun á ferlinum. Arnar Eggert Thoroddsen doktor í tónlistarfræðum rýnir í töfrana á bakvið tónlist Laufeyjar í settinu í beinni útsendingu. Við verðum í beinni frá Sambíó Álfabakka og ræðum við sérfræðing í kvikmyndum um þróun kvikmyndahúsa. Þá verðum við í beinni frá verðlaunaafhendingu Best of Reykjavík og sjáum myndefni frá Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn þar sem gulldrengir Danmerkur eru hylltir sem hetjur eftir að hafa sigrað Evrópumótið í handbolta. Í sportinu hittum við fyrrverandi landsliðsmann í handbolta sem telur að íslenska liðið geti farið alla leið á næstu árum og við ræðum við eitt fremsta lið heims í samhæfðum skautadansi sem æfir þessa dagana í Reykjavík. Í Íslandi í dag verður rætt við hlaupara sem gerir ekki annað en að slá met. Við kynnumst manninum á bakvið hlauparann. Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18.30.
Kvöldfréttir Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira