Fækka sýslumönnum í einn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 18:33 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Lýður Valberg Alþingi hefur samþykkt frumvarp þess efnis að fækka embættum sýslumanna úr níu í eitt. Ekki liggur fyrir hvar embættið verður staðsett.
Þingmenn greiddu atkvæði um frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að lokinni þriðju umræðu í dag. Þingmenn ríkisstjórnarinnar greiddu með frumvarpinu en þingmenn Miðflokksins og Framsóknarflokksins gegn því. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. Lögin taka gildi 1. janúar 2027 og hefur því ráðherrann eitt ár til þess að undirbúa stofnun nýs sýslumannsembættis með setningu reglugerðar. Hann hefur heimild til að skipa sýslumann í nýtt embætti fyrir gildistöku laganna og verður hlutverk hans að undirbúa breytinguna. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að markmiðunum með sameiningunni megi skipta í þrjá flokka. Í fyrsta lagi hyggjast þau gera þjónustu við almenning eins góða og hægt er, í öðru lagi að hámarka nýtingu fjármagns sem ráðstafað er til reksturs sýslumanns og í þriðja lagi að vinna markvisst að þeim markmiðum sem stefnt er að í byggðaáætlun og stefnuáherslu ríkisstjórnarinnar. Þorbjörg skrifaði skoðanagrein á Vísi um frumvarpið þar sem hún segir að með samþykkt frumvarpsins hafi sjálfstæðum stofnunum fækkað um fimm prósent á Íslandi. Aðalskrifstofur sýslumannsembættanna níu eru núna staðsettar í Kópavogi, Stykkishólmi, Vestmannaeyjabæ, Reykjanesi og á Patreksfirði, Blönduósi, Húsavík, Seyðisfirði og Selfossi.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Stjórnsýsla Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira