Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 2. febrúar 2026 20:04 Árni Bragason, fyrrverandi landgræðslustjóri, sem var með erindi á opnu húsi hjá eldri borgurum á Selfossi síðasta fimmtudag. Magnús Hlynur Hreiðarsson Fyrrverandi landgræðslustjóri gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hugsa lítið sem ekkert um fæðuöryggi þjóðarinnar eins og þessum stríðstímum, sem eru núna í heiminum. „
Fæðuöryggi í breyttri framtíð” var yfirskrift á erindi, sem Árni Bragason, fyrrverandi landgræðslustjóri hélt á opnu húsi hjá eldri borgurum á Selfossi. Auk þess fjallaði hann um loftslagsbreytingar og spurði spurninganna; „Hvað borðum við? Og hvað getum við gert til að tryggja fjölbreytileikann?“ Fram kom hjá Árna að spár fyrir heiminn geri ráð fyrir að það þurfi að framleiða um 70% meiri mat árið 2050 en framleiddur er í dag við verri aðstæður vegna flóða, þurrka og mengunar. Svo sagði Árni meðal annars þetta. „Já, það er dapurlegt að íslensk stjórnvöld hafi því miður ekki verið að standa sig í því að tryggja fæðuöryggi. Ísland er algjörlega háð innfluttri olíu og við erum líka algjörlega háð innflutningi á kornvörum,” sagði Árni og bætti við. „Stjórnvöld eru því miður ekki að standa þig nógu vel, það hefur aðeins verið tekið á en allt of lítið og mér finnst að menn þurfi aðeins að setjast niður. Við sjáum bara eins og á þessum stríðstímum, sem núna eru, við vitum ekkert hvernig þróunin verður í heiminum.” Ein af glærunum frá Árna.Magnús Hlynur Hreiðarsson Árni sagði að við værum að nota á Íslandi um 400 þúsund tonn af kornvörum á hverju ári en við séum aðeins að framleiða sjálf um 40 þúsund tonn af byggi á ári. „Ef það yrði klippt á innflutning á fóðurvörum inn til Íslands þá myndi hrynja mjólkurframleiðsla, eggjaframleiðsla, kjúklinga og svína. Við getum ræktað miklu meira á Íslandi og mér finnst að stjórnvöld þurfi að setja meiri fjármuni í kynbætur, styrkja það starf, sem er betur fer komið vel í gang hjá Landbúnaðarháskólanum en við þurfum að kynbæta, við þurfum að prófa tegundir, sem við getum notað til að styrkja okkar landbúnað”, sagði Árni. Kornbændur á Íslandi eru að framleiða um 40 tonn af korni á ári. Hér eru bændurnir á bænum Keldudal í Skagafirði í einum af kornökrum sínum að skoða kornið.Magnús Hlynur Hreiðarsson Fjölmenni hlustaði á erindi Árna.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Skógrækt og landgræðsla Stjórnsýsla Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira