Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Kjartan Kjartansson skrifar 2. febrúar 2026 13:03 Þorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, (t.h.) tekur í spaðann á Vladímír Pútín Rússlandsforseta þegar sá fyrrnefndi var framkvæmdastjóri Evrópuráðsins árið 2018. Vísir/EPA Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda.
Epstein-skjölin sýna að Jagland skipulagði heimsókn til alræmdrar eyju Epstein í Karíbahafi með fjölskyldu sinni á meðan hann var formaður norsku Nóbelsnefndarinnar. Ekkert varð af heimsókninni eða fjölskylda Jagland dvaldi hins vegar í sumarhúsi Epstein á Pálmaströnd á Flórída. Jagland ræddi einnig í tölvupóstum um að koma Epstein í samband við Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, rétt fyrir fund Donalds Trump og Vladímírs Pútín í Helsinki árið 2018. Starfsmenn Epstein lýstu Jagland sem „Nóbelsstórlaxinum“. Dómgreindarbrestur en segir ekki af sér Jagland tekur undir með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra, að það hafi verið dómgreindarbrestur af sinni hálfu að eiga í samskiptum við Epstein sem hlaut dóm fyrir kynferðisbrot á Flórída á seinni hluta fyrsta áratug þessarar aldar. Hann ætlar þrátt fyrir það ekki að segja sig úr norska Verkamannaflokknum. Talsmaður Jagland og lögmaður boðar yfirgripsmikla yfirlýsingu á næstunni þegar hann hefur náð að fara yfir ásakanirnar. Þær séu svo umfangsmiklar að það taki sinn tíma. „Það hefur einnig komið í ljós að það er ástæða til þess að rannsaka frekar hvort að gögnin sem eru lögð fram séu ósvikin,“ hefur norska ríkisútvarpið eftir talsmanni Jagland. Krónprinsessa og yfirmaður flóttamannastofnunar í skjölunum Mette-Marit, krónsprinsessa Noregs, stígur nú einnig krappan dans vegna Epstein-skjalanna. Í þeim kemur fram að hún hafi átt í nokkuð nánum samskiptum við níðinginn á nokkurra ára tímabili. Í nágrannaríkinu Svíþjóð sagði yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna þar af sér eftir að skjölin sýndu að hann hefði heimsótt Epstein á eyju hans árið 2012.
Noregur Mál Jeffrey Epstein Nóbelsverðlaun Bandaríkin Kynferðisofbeldi Mest lesið Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira