Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. febrúar 2026 14:53 Vilhjálmur Árnason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður þingflokksins. vísir/vilhelm Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það létti að hafa unnið sannfærandi sigur í leiðtogaprófkjöri flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hann kveðst afar þakklátur og ætlar að sinna þingstörfum og kosningabaráttu fram að sveitarstjórnarkosningum í maí.
Hann sigraði með 58 prósent atkvæða og er því bæjarstjóraefni flokksins í Reykjanesbæ. Ásgeir Elvar Garðarsson hafnaði í öðru sæti með 510 atkvæði. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í prófkjöri flokksins í Reykjanesbæ. Hann kveðst afar þakklátur eftir baráttuna um fyrsta sætið á lista flokksins. „Ég er stoltur af hópnum mínum sem tók þátt í þessu með mér. Við erum gríðarlega þakklát fyrir þetta skýra umboð. Það var mikill léttir að fá svona skýra niðurstöðu og sjá að árangur erfiðisins skilaði sér.“ Mun sjá eftir þinginu Vilhjálmur hefur setið á Alþingi undanfarin 12 ár. Síðustu fjögur ár hefur hann verið ritari Sjálfstæðisflokksins en hann er einnig varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hann mun segja af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu. „Ég hef sagt það að markmiðið er að fara í sveitarstjórnarkosningar til að verða pólitískt kjörinn bæjarstjóri. Þegar það er í höfn mun ég segja af mér þingmennsku en fram að því mun ég sinna þingmennskunni af fullum þunga. Það kemur bara í ljós í kringum kosningabaráttuna sjálfa hvernig það raðast þá. Ég læt það ráðast.“ Ef þú verður ekki bæjarstjóri, muntu þá halda áfram á þinginu? „Já, þá mun ég líklega taka þá ákvörðun en ég skoða það bara ef að því kemur. Ég kann vel við mig á þinginu og þar eru mörg mikilvæg verkefni í góðum hópi þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ég mun sjá mikið eftir þinginu. Þar er gott að vera og ég kann mjög vel við mig þar.“ Gott samfélag sem hafi tekið vel á móti honum Hann segist ætla berjast fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. „Við ætlum að breyta stefnunni hjá Reykjanesbæ. Þá helst hvað varðar skipulagsmál, rekstur bæjarins og ekki síst álögur á íbúa og eflingu íþróttastarfs og atvinnulífs. Það verður sú stefnubreyting sem við boðum.“ Honum þyki verulega vænt um Reykjanesbæ. Hann flutti þangað eftir að hann neyddist til að flytja frá Grindavík þegar bærinn var rýmdur árið 2023 í kjölfar jarðhræringa. „Ég hef mikla ástríðu fyrir því að gera þetta bæjarfélag enn betra. Þetta er gott samfélag sem tók vel á móti mér og minni fjölskyldu núna þegar að við ákváðum að flytja hingað. Hér eru strákarnir mínir og stunda íþróttir. Við búum hér og ætlum að gera. Mig klæjar í fingurna að fá að taka þátt í að gera nærsamfélagið hérna enn betra.“
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjanesbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Maðurinn fundinn Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Fleiri fréttir Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Sjá meira