Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar 1. febrúar 2026 11:00 Ég hitti um daginn ung hjón sem eru bæði í fullri vinnu, borga skatta og fylgja „réttu leiðinni“ í fjármálum sem kerfið og bankarnir segja þeim að lifa eftir til að geta borgað af skuldunum. Samt eru þau að kafna í afborgunum lána og greiðslu framfærslu heimilisins. Það er ekki vegna óstjórnar eða lélegrar áætlanagerðar hjá þeim sjálfum – heldur vegna ákvarðana stjórnvalda og Seðlabanka sem eru ófyrirsjáanlegar og orðnar kerfisbundið skaðlegar aðgerðir fyrir heimili ungs fólks og ungar fjölskyldur. Verðbólga og háir vextir eru ekki lengur einstakt hagfræðilegt vandamál. Þetta er lífskjarakreppa sem étur upp heimili unga fólksins, eyðileggur framtíðarplönin og traustið á samfélaginu. Háir vextir sem refsiaðgerð Stýrivextir eru réttlættir með því að „kæla hagkerfið“. Í reynd eru þeir að kæfa skuldsett heimili. Áhrifin lenda fyrst og fremst á ungu fólki með nýleg húsnæðislán – fólki sem hafði lítið val þegar það steig inn á markaðinn sem fullorðið fólk og fór að búa. Á sama tíma er kaupmáttur að mestu stöðugur eða rýrnandi, þannig að þessi hópur ber nánast alla byrðina. Þetta er ekki tímabundið ástand – þetta er viðvarandi og hættuleg stefna sem hefur áhrif á kynslóðir. Helsta ástæða verðbólgunnar liggur ekki hjá heimilunum Ráðamenn, stundum stjórnmálamenn tala um „óábyrga neyslu“ ungs fólks, utanlandsferðir á visakortinu osfv. sem orsök verðbólgu. Sannleikurinn er annar: undirliggjandi verðbólga og verðbólguþrýstingur sprettur af húsnæðisskorti, skorti á samkeppni og einstaklega óskilvirkum opinberum framkvæmdum þar sem óprúttnir aðilar mjólka peninga út úr ríkinu með allskonar leikfléttum, bellibrögðum og sjónhverfingum. Samt er svarið alltaf það sama: bara hækka vextina og láta heimilin borga. Kerfið refsar harðast ungu fólki sem eru oftast verst sett, og án þess að ráðast á hina raunverulegu rót vandans. Verðtryggð lán eru snjóbolti sem vex Verðtryggð lán í langvarandi verðbólgu hækka höfuðstólinn þó afborganir séu greiddar skilvíslega. Þetta er þögul tilfærsla byrða núverandi kynslóðar yfir á næstu kynslóð og er orðin óbærileg byrði fyrir unga lántakendur eins og ungu hjónin sýndu mér. Auk þess á sama tíma og greiðslubyrði húsnæðislána heimila snar hækkar um tugi prósenta, þá stendur kaupmáttur launa nánast í stað eða rýrnar. Ástandið er ekki tilviljun – það er afleiðing pólitískra ákvarðana og getur endað með gjaldþroti eins og dæmin sýna eftir mörg efnahagsleg áföll í Íslensku samfélagi. Heimili unga fólksins er ekki peningauppspretta eða olíulind sem getur sveiflujafnað eyðsluna í samfélaginu. Kerfi sem vinnur gegn þeim sem vilja búa hér Ungt fólk er hvatt til að kaupa húsnæði, stofna fjölskyldu og „byggja upp samfélagið“. Kerfið sem tekur á móti ungu fólki gerir útborgun í húsnæði óraunhæfa, óstöðugt daglegt efnahagsástand og framtíðaráætlanir að áhættuverkefni. Þetta eru ákvörðunartæki sem halda kynslóðum í hættulegum skuldahöftum. Traustið er að brotna Þegar sama lausnin er notuð aftur og aftur, þrátt fyrir skaðann, rofnar samfélagssáttmálinn. Fólk hættir að trúa því að kerfið vinni fyrir það. Ung hjón þurfa að velja á milli þess að eignast börn eða halda heimili. Þetta er pólitískt gjaldþrot, sama hvernig tölurnar líta út í skýrslum. Lokaorð - sem stjórnkerfið getur hugleitt Unga fólkið er ekki lengur að kvarta. Þau eru bara að vara við og benda á. Þetta fólk hugsar sinn gang og ætlar ekki að láta draga sig á asnaeyrunum endalaust. Hver ætli beri ábyrgð á húsnæðisskorti á viðráðanlegu húsnæði - sem er eitraður og mjög skaðlegur efnahagslegur skortur sem hefur verið látinn viðgangast árum saman? Veit einhver af hverju eina svarið við innlendri, kerfislægri verðbólgu er alltaf að hækka vexti á heimilin? Er mögulegt að stjórnvöld viðurkenni að núverandi stefna bitnar fyrst og fremst á ungu fólki – og eru hugsanlega til í að breyta henni? Það er staðreynd að: „Ungt fólk á Íslandi er eini hópurinn í hagkerfinu sem hefur verið látinn taka á sig bæði verðbólguna og vaxtahækkanirnar samtímis – og svo er sami hópurinn sakaður um óábyrgan lífsstíl.“ Ef enginn ber ábyrgð, þá er það ákvörðun stjórnvalda. Ef ekkert breytist, þá er það stefna stjórnvalda. Nokkrar aðrar staðreyndir: Stýrivextir á Íslandi eru meðal þeirra hæstu í Evrópu, þrátt fyrir að stór hluti verðbólgunnar sé innlend og kerfislæg. Húsnæðiskostnaður vegur þyngst í verðbólgunni og bitnar harðast á fyrstu kaupendum. Verðtryggð lán hækka höfuðstól í verðbólgu, jafnvel þó afborganir séu greiddar skilvíslega. Ungt fólk frestar barneignum vegna ófyrirsjáanlegs kostnaðar. Brottflutningur ungs og vel menntaðs fólks eykst þegar framtíðin virðist fjárhagslega ótrygg. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Efnahagsmál Fjármál heimilisins Húsnæðismál Lánamál Sigurður Sigurðsson Mest lesið Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir Skoðun Daði Már og mannauðsmálin Kári Sigurðsson Skoðun Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson Skoðun Stóra sleggjan Gunnar Einarsson Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson Skoðun Skerjafjarðargöng – spörum tíma í umferðinni Hilmar Ingimundarson Skoðun Eru tæknilegar forsendur orkuskipta til staðar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Tvær milljónir barna deyja í þögn Gunnar Salvarsson Skoðun Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon Skoðun Mýrar skipta máli - Alþjóðlegur dagur votlendis Álfur Birkir Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir skrifar Skoðun Skerjafjarðargöng – spörum tíma í umferðinni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson skrifar Skoðun Valdboð í stað samtals – hættulegur tíðarandi Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Tvær milljónir barna deyja í þögn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Stóra sleggjan Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Daði Már og mannauðsmálin Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Orðaleppar og annað óþolandi Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Eru tæknilegar forsendur orkuskipta til staðar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mýrar skipta máli - Alþjóðlegur dagur votlendis Álfur Birkir Bjarnason skrifar Skoðun Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Myndir þú vilja losna við áhyggjur? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason,Jóhanna Pálsdóttir skrifar Skoðun Getur hver sem er boðið sig fram til sveitarstjórna? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Sleggjunni beitt – gegn almenningi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Borgarlínan verður kosningamálið í vor Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Framboð sem byggir á trú á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson skrifar Skoðun Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gott frumvarp en hverjir komast raunverulega að borðinu? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun María Rut og samkeppnishæfnin Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa það sem þarf Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kjósum mann sem klárar verkin! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg er ramminn, ekki málverkið Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stjórnendur eru brúin – Ísland á að leiða fagmennsku, ekki draga úr henni Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Bærinn er fólkið Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Verðbólga á Íslandi er ekki slys – hún er afleiðing ákvarðana Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að læra af fortíðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir skrifar
Skoðun Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason,Jóhanna Pálsdóttir skrifar
Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnendur eru brúin – Ísland á að leiða fagmennsku, ekki draga úr henni Nichole Leigh Mosty skrifar