Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Lovísa Arnardóttir skrifar 29. janúar 2026 11:01 Þórhallur segir trúnaðarbrest innan flokksins og kallar eftir prófkjöri. Aðsend Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann kallar eftir því að farið verði í prófkjör og segir trúnaðarbrest að fyrrverandi formaður fulltrúaráðs, sem tók ákvörðun um röðun á lista, bjóði sig nú fram til oddvita.
Röðun um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fer fram á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri þann 7. febrúar. Áður höfðu Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Heimir Örn Árnason, sitjandi oddviti flokksins á Akureyri og formaður bæjarráðs, bæði tilkynnt um framboð til oddvita en tilkynntu svo um bandalag um síðustu helgi. Mynduðu bandalag um fyrstu tvö sætin Þórhallur sakar Berglindi um trúnaðarbrest í framboðstilkynningu sinni. Ákveðið hafi verið að fara í röðunarfyrirkomulag á lista þegar Heimir hafi verið einn í framboði. Berglind hafi áður gegnt stöðu formanns fulltrúaráðs sem tók ákvörðun um röðun á lista en svo ákveðið að segja af sér sem formaður og boðið sig fram til oddvita. Hún hafi svo myndað bandalag með Heimi án þess að ræða það við fulltrúaráð eða stjórnir flokksins á Akureyri. Vegna þess sjái hann sig knúinn til að gefa kost á sér til að leiða lista flokksins fyrir kosningarnar í vor. „Aðgengi fráfarandi formanns fulltrúaráðs að kjörskrá umfram aðra frambjóðendur setur trúverðugleika röðunarfyrirkomulags og kosningar þar um í uppnám. Með framboði mínu skora ég einnig á flokkinn að halda stefnu sinni og hefðum, fara í prófkjör og leyfa sjálfstæðisfólki á Akureyri að velja sér oddvita með lýðræðið í fyrirrúmi,“ segir hann að lokum.
Akureyri Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarmál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira