Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Smári Jökull Jónsson skrifar 26. janúar 2026 23:17 Þeir Björn Bent, Tristan, Steinar Örn og Hrólfur voru hressir þegar þeir ræddu við fréttamann í dag. Vísir Nemendur í Réttarholtsskóla tóku sig saman og skipulögðu handboltamót í skólanum. Þeir fengu þaulreyndan handboltamann til að sjá um dómgæslu á mótinu og eru bjartsýnir fyrir hönd íslenska landsliðsins á Evrópumótinu
Handboltaæði hefur grípið þjóðina og það ekki í fyrsta skipti. Þegar fréttamaður Sýnar leit við í íþróttahúsi Réttarholtsskóla var að hefjast handboltamót og það voru nemendur sjálfir sem höfðu veg og vanda að skipulagningu. Fyrstu leikir mótsins fóru fram í dag og var mikið fjölmenni í íþróttasalnum og stemmningin eftir því. Það var hart barist í viðureign dagsins.Vísir/Anton Brink „Okkur fannst bara vanta einhverja stemmningu í hádeginu í skólanum og vildum bara halda handboltamót. Fullur salur og algjör veisla,“ sagði Steinar Örn nemandi í Réttó. Þið hljótið að vera ánægðir með hvað eru margir að fylgjast með og taka þátt? „Að sjálfsögðu, bara mjög góð mæting og þetta er geðveikt.“ Fjölmargir fylgdust með á hliðarlínunni.Vísir/Anton Brink Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar skipuleggja á handboltamót. „Við þurftum að redda íþróttasalnum, dómurum, styrktaraðilum og alls konar. Þetta er búið að vera mikil vinna en er allt að koma núna,“ bætti Steinar við. Í handbolta spilar dómari stórt hlutverk og í Réttó dugði ekkert minna til en að leita til fyrrum atvinnumanns og hetju úr efstu deild, manns sem er með fjölmarga titla í ferilskránni. Hugmyndin að mótinu kom upp í kennslustund. „Ég sagði já, þetta er góð hugmynd en þið þurfið að gera allt. Ég skal bara vera starfsmaður, ég mætti bara að dæma og þau eru búin að sjá um umgjörðina. Þetta er bara geggjað hjá þeim,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson verkefnastjóri í Réttarholtsskóla og fyrrum handboltamaður en hugmyndin kom upp í umræðum um hvað væri hægt að gera til að bæta skólastarfið. Jóhann Gunnar tók að sér dómgæslu en hann á að baki glæstan feril í efstu deild hér á landi.Vísir/Anton Brink Leikirnir mega ekki skarast við kennslustundir og nemendur þurfa því að fórna frímínútum og matartímum. Jóhann sagði erfitt að dæma leikina og hann fékk að heyra það úr stúkunni. „Dómarinn á Ölver og eitthvað, þetta kemur beint úr stúkunni í Víkinni. Maður þekkir þetta. Ég var við öllu búinn og var búinn að undirbúa mig mjög vel andlega fyrir svona köll.“ Gegnumbrot sem vafalaust skilaði marki.Vísir/Anton Brink Margir af krökkunum æfa handbolta með Víkingi og fylgjast vel með landsliðinu á EM. „Okkur líst bara vel á þetta, flottur sigur í gær og það er bara úrslit,“ sagði Steinar Örn. Hvernig heldur þú að leikurinn fari gegn Sviss? „Ég er að vonast eftir stórsigri hjá okkar mönnum en jafn leikur, býst við því,“ bætti Tristan félagi hans við áður en þeir voru þotnir í næsta leik.
Handbolti Börn og uppeldi Íþróttir barna Grunnskólar Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira