Selenskí undir miklum þrýstingi Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 23. janúar 2026 19:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir frið verða að koma á forsendum Úkraínu. Vísir/anton brink Utanríkisráðherra bindur vonir við að tímamótaviðræður sendinefnda Úkraínu, Bandaríkjanna og Rússlands í Abú Dabí skili árangri. Mikilvægt sé þó að fullveldi Úkraínu verði virt og friðurinn verði raunverulegur og ekki á forsendum Rússa.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu funduðu í gær í Davos í Sviss í aðdraganda viðræðnanna. Sendinefndir ríkjanna þriggja hittust svo í borginni Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag en lítið hefur þó frést af gangi mála þar. Ekki fundað með þessum hætti síðan innrásarstríðið hófst Þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar ríkjanna þriggja funda saman til að finna leið í átt að friði en nær fjögur ár eru nú liðin frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Það má sannarlega segja að mikið sé í húfi en væntingarnar til fundarins eru þó hóflegar. Viðræðurnar hafa til að mynda ekki dregið úr árásum Rússa á Úkraínu. Þá hafa yfirlýsingar ráðamanna í ríkjunum þremur undanfarið ekki verið til þess fallnar að vekja bjartsýni um árangur af viðræðunum. Stjórnvöld í Moskvu hafa til að mynda ítrekað lýst því yfir að friður komist ekki á fyrr en Úkraínumenn hörfi frá stóru og víggirtu svæði í austurhluta Úkraínu, Donbass-svæðinu, sem Rússar vilja stjórna. Úkraínumenn hafa útilokað það. Ísland átti frumkvæði að fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er stödd í Genf þar sem hún ávarpaði í dag mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna á sérstökum aukafundi sem haldinn var að frumkvæði Íslendinga vegna stöðu mannréttinda í Íran og mótmæla þar í landi. Hún hefur verið í sambandi við kollega sína vegna fundarins í Abú Dabí. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði nýverið Evrópu þurfa að breytast og það hratt.AP/Markus Schreiber „Auðvitað bindum við vonir við það að samtöl skili sér. En ég undirstrika afstöðu Íslands, Norðurlandanna og Evrópu í þá veru að við þurfum frið í Úkraínu en friðurinn verður þá að vera langvarandi og hann verður að vera réttlátur og hann verður að virða fullveldi Úkraínu og sjálfsákvörðunarrétt Úkraínu í þá veru og við vitjum alveg hvað Úkraína vill. Úkraína vill verða aðili að NATO. Úkraína vill vera aðili að Evrópusambandinu til að treysta sitt fullveldi en Úkraína vill fyrst og síðast frið. Þá verðum við að tryggja friðinn með þeim hætti að það verði raunverulegur friður en ekki friður á forsendum Rússa. Það myndi ekki ganga,“ segir Þorgerður. Mikilvægt sé að Úkraínumenn upplifi stuðning. „Þetta reynir á alþjóðasamfélagið og Guð minn góður reynir á þrýstinginn á Selenskí. Þetta er rosalegt verkefni sem hann stendur frammi fyrir og þess þá heldur þurfum við að láta hann finna að lýðræðislega þenkjandi ríki sem tala fyrir mannréttindum og frelsi styðja hann til skemmri og lengri tíma,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Úkraína Rússland Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Sameinuðu arabísku furstadæmin Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru nú sagðir ætla að halda samningafund í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um stríðið í Úkraínu og mögulegt vopnahlé. Fundurinn fer fram í dag og er um að ræða fyrstu viðræðurnar frá innrás Rússa fyrir hartnær fjórum árum þar sem Rússar og Úkraínumenn sitja við sama borð ásamt Bandaríkjunum. 23. janúar 2026 07:21 Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, gagnrýndi ríki Evrópu og sagði ráðamenn heimsálfunnar skorta pólitískan vilja til að standa í hárinu á Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann kallaði eftir alvöru aðgerðum frá Evrópu og aukinni samstöðu, svo eitthvað sé nefnt. 22. janúar 2026 15:32 Mest lesið Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Erlent Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Erlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Innlent Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Erlent „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Erlent Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Fleiri fréttir Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Harmi slegin vegna fjölda tilkynninga af leikskólum Ráðherra í áfalli, rógsherferð og æsispennandi kosningar Ester Bíbí leiðir Vinstrið í Hafnarfirði Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Sjá meira
Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru nú sagðir ætla að halda samningafund í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um stríðið í Úkraínu og mögulegt vopnahlé. Fundurinn fer fram í dag og er um að ræða fyrstu viðræðurnar frá innrás Rússa fyrir hartnær fjórum árum þar sem Rússar og Úkraínumenn sitja við sama borð ásamt Bandaríkjunum. 23. janúar 2026 07:21
Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, gagnrýndi ríki Evrópu og sagði ráðamenn heimsálfunnar skorta pólitískan vilja til að standa í hárinu á Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann kallaði eftir alvöru aðgerðum frá Evrópu og aukinni samstöðu, svo eitthvað sé nefnt. 22. janúar 2026 15:32