Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. janúar 2026 06:52 Margir bíða eftir ræðu Trump á World Economic Forum í Davos í dag. Getty/Anna Moneymaker Flugvél forseta Bandaríkjanna, Air Force One, var snúið við skömmu eftir flugtak í nótt eftir „lítilsháttar rafmagnsbilun“. Vélin var á leið til Davos í Sviss með Donald Trump innanborðs en hann skipti um vél skömmu eftir lendingu og engar fregnir hafa borist af því að töfin muni hafa áhrif á dagskrá World Economic Forum í dag.
Blaðamaður sem var um borð í vélinni sagði að ljósin hefðu flöktað í fjölmiðlarýminu í smá stund eftir að vélin var komin í loftið. Tvær vélar eru notaðar til að flytja forsetann um þessar mundir. Unnið er að því að taka þriðju vélina í gegn og gera hana nothæfa en sú er splunkuný og var gjöf til Trump frá Katar. Bandaríkjaforseti mun ávarpa ráðstefnugesti í Davos klukkan 13.30 að íslenskum tíma. Áður munu fara fram umræður um efnahagslega getu Rússa til að halda áfram stríðsrekstrinum í Úkraínu og um varnir Evrópu. Þá mun Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefja daginn á blaðamannafundi um alþjóðleg viðskipti klukkan 7.00. Trump hefur sjálfur sagt frá því að hann búist við því að eiga marga fundi um Grænland í Davos en leiðtogar Evrópu og Kanada hafa lýst því yfir í vikunni að þeir hyggist ekki víkja frá stuðningi sínum við Grænlendinga og Dani. Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, sem hefur verið iðinn við að „trölla“ Trump á samfélagsmiðlum, hefur einnig tjáð sig um málið og segir leiðtogana þurfa að stappa í sig stálinu og mæta Trump af hörku. „Það er ekki hægt að semja við Donald Trump. Hann er grameðla; annað hvort makar þú þig með honum eða hann étur þig.“
Donald Trump Bandaríkin Grænland Danmörk Sviss Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira