Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Árni Sæberg skrifar 15. janúar 2026 15:47 Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi. Vísir/Vilhelm Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte, segir það hafa verið honum mikið áfall að ákært hafi verið vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot. Ásakanirnar eigi sér enga stoð í raunveruleikanum og hann hafi kært brotaþola fyrir rangar sakargiftir. Hann hefur þó stigið til hliðar sem forstjóri. „
Þann 13. maí 2023 hélt ég ásamt kollegum mínum vinnufund á Hótel Rangá. Það kvöld gerðist einfaldlega ekkert af því sem lýst er í stuttri ákæru sem mér var birt og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Ég áreitti enga, engin átök áttu sér stað og þaðan af síður ógnaði ég einhverjum. Ég hef aldrei brotið gegn nokkurri manneskju og sver af mér alla óviðeigandi hegðun. Þess vegna átti ég von á því að málið yrði látið niður falla enda uppspuni frá rótum,“ segir í yfirlýsingu frá Þorsteini Pétri. Vísir greindi í dag frá ákæru á hendur Þorsteini Pétri en honum er gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. „Ég treysti því að á endanum muni staðreyndirnar tala sínu máli og sannleikurinn koma í ljós. Hef ég í þeim tilgangi leitað réttar míns og kært viðkomandi fyrir rangar sakargiftir. Á meðan þetta mál er til lykta leitt stíg ég til hliðar sem forstjóri Deloitte. Ég mun ekki tjá mig frekar um málið á meðan það er rekið fyrir dómstólum,“ segir hann í yfirlýsingu.
Lögreglumál Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira