Flott hjá læknum! Siv Friðleifsdóttir skrifar 15. janúar 2026 07:47 Samfélagsumræðan um aukið aðgengi að áfengi með umdeildri netsölu fer vaxandi sem betur fer. Fjölmiðlar fjalla um málið og fólk tjáir sig á samfélagsmiðlum og víðar. Ekki veitir af því samfélagið þarf að vakna áður en það er of seint. Áskorun til yfirvalda um yfirstandandi lýðheilsuógn og sparnaðarráð Heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök hafa tvívegist upp á síðkastið hvatt stjórnvöld áfram með áskorunum og ráðum hvað varðar stefnu í áfengismálum. Í þessum hópi eru m.a. Læknafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Þroskaþjálfafélag Íslands, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum. Hafa heilbrigðisstéttir þessar og forvarnarsamtök hvatt stjórnvöld til að láta ekki deigann síga heldur efla lýðheilsu og spara fjármagn sem annars færi í að verjast afleiðingum óhóflegrar áfengisneyslu. Þann 26. ágúst 2024 var komið á framfæri Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Í janúar 2025 sendu aðilarnir stjórnvöldum sparnaðarráðið Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka ofl. í samráðsgátt 21. janúar 2025. Forvarnarsamtök hafa beitt sér um árabil Um árabil hafa forvarnarsamtök beitt sér fyrir því að farið sé eftir lögum um einkasölu ríksins á áfengi eða allt frá því að ÁTVR kærði netsölu áfengis til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þann 16. júní 2020. Það tók lögreglu rúmlega 5 ár að klára að rannsaka málið og koma því í ákæru til héraðsdóms Reykjaness, en það var gert síðast liðið haust. Þingfesting fór fram í vetur og í fyrradag var fyrirtaka þess. Samkvæmt upplýsingum á síðum dómstólsins fer aðalmeðferð málsins fram 5. mars nk. kl. 9:30-14:00. Það sér því fyrir endalok málsins. Dómsdagur nálgast. Daði Már Kristófersson Fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið skýrmæltur upp á síðkastið hvað varðar netsölu áfengis. 23. ágúst sl. segir hann í vísi „Það er mjög mikilvægt að við fáum skýringu á því hvort þetta sé innan heimilda laganna og það á eftir að taka um það umræðu. Það fer þá í meðferð þingsins hvort ástæða sé til að breyta þeim.“ og “Þetta eru auðvitað ákvarðanir sem þessir aðilar hafa tekið og hljóta að hafa gert sér grein fyrir þeirri áhættu sem þeir hafa verið að taka.” Þann 5. janúar sl. segir hann í mbl „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um það hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum,“ Forvarnarsamtök og nú læknar Forvarnarsamtök hafa haldið málþing um stöðu áfengisstefnunnar á Íslandi fyrri hluta árs 2024 og þann 16. júní sl. Tókst þannig að kasta ljósi á þróun mála. Nú blása læknar einnig til opins málþings fyrir almenning í tengslum Læknadaga. Vel gert hjá þeim að bjóða alla velkomna. Málþingið Skál fyrir betri heilsu! – Áfengi í alfaraleið – Samtal við samfélagið er í Silfurbergi í Hörpu kl.20 miðvikudagskvöldið 21. janúar nk. Það miðar að því að upplýsa almenning um þá miklu normalíseringu áfengisneyslu sem orðin er og ná fram samtali um hvernig snúa verði þeirri þróun við svo lýðheilsa eflist og fjármagn sparist. Á almenningi ekki bara að vera slétt sama um opinbera stefnu? Almenningi er tæpast slétt sama um hvaða áfengis – og vímuvarnastefna gildir á Íslandi. Óhófleg áfengisneysla skaðar lýðheilsu og kosta samfélagið háar upphæðir og þjáningu dag hvern. Það fjármagn ætti frekar að nota í að efla velferðarkerfið og samfélagslega uppbyggingu. Rannsóknir sýna að aðgengi að áfengi skiptir máli. Verjum einkasölu ríkisins á áfengi því hún takmarkar aðgengi og heldur markaðskröftum frá því að ota áfengi að almenningi. Meira aðgengi veldur meiri neyslu. Svo einfalt er það. Hlustum á heilbrigðisstéttir, forvarnarsamtök og fleiri sem þekkja vel til gagnreyndra rannsókna og vísinda á heilbrigðis- og lýðheilsusviði. Það er mikið undir. Höfundur er félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Siv Friðleifsdóttir Áfengi Mest lesið Halldór 08.08.26 Halldór The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar