Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. desember 2025 12:02 Neymar er markahæsti landsliðsmaður Brasilíu frá upphafi með 79 mörk í 128 landsleikjum. Vísir/Getty Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar gekkst undir skurðaðgerð í enn eitt skipti og lofar að verða í góðu standi þegar heimsmeistaramótið hefst næsta sumar.
Neymar hafði verið að glíma við hnémeiðsli lengi en frestaði aðgerð til að geta spilað síðustu leiki tímabilsins með Santos. Hann skoraði fimm mörk og lagði upp eitt mark í síðustu fimm leikjunum til að bjarga uppeldisfélaginu frá falli úr brasilísku úrvalsdeildinni. Svo virðist nú sem samningur hans, sem er að renna út um áramótin, verði framlengdur og Neymar muni spila með Santos fram að HM á næsta ári. Fyrst þarf hann hins vegar að jafna sig eftir aðgerðina sem hann gekkst loks undir í gærmorgun. Aðgerðin gekk vel samkvæmt yfirlýsingu Santos og Neymar er kominn á fætur en mun líklega ekki spila fyrr en í febrúar í fyrsta lagi. Um síðustu helgi, áður en Neymar lagðist undir hnífinn, var hann mjög yfirlýsingaglaður og sagði Brasilíumönnum að búa sig undir veislu næsta sumar. „Ég vildi segja ykkur að við ætlum að gera hið ómögulega og koma með sjöttu [HM] styttuna heim. Eða, ómögulegt og ekki ómögulegt, þið megið minna mig á orð mín í júlí“ sagði Neymar og hélt áfram ræðu sinni þar sem hann jós hrósi yfir þjálfarann Carlo Ancelotti. „Ef Brasilíu kemst í úrslitaleikinn lofa ég að skora mörk“ sagði Neymar einnig en hann hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan Carlo Ancelotti tók við störfum síðasta sumar.
Brasilía HM 2026 í fótbolta Fótbolti Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Sjá meira