Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2025 14:01 Maðurinn fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi. Vísir/Vilhelm Karlmaður sem aftur er kominn á bak við lás og slá í tengslum við rannsókn lögreglu á mannsláti í Kópavogi í lok nóvember er frá Grikklandi. Lífsýni á hnífi er lykilgagn í málinu.
Það var sunnudaginn 30. nóvember sem karlmaður fannst látinn á heimili sínu í Kársnesinu í Kópavogi. Nágrannar fylgdust með lögreglubílum drífa að og var tæknideild lögreglu að störfum í húsinu í lengri tíma. Samkvæmt heimildum RÚV hafði nákominn aðili undrast um manninn sem er af portúgölskum uppruna. Sá hafði ekki náð í hann í hálfan annan sólarhring. Grískur félagi mannsins var handtekinn nokkrum dögum síðar og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Honum var sleppt í innan við sólarhring áður en hann var aftur úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að ný gögn komu á borð lögreglu. Samkvæmt heimildum RÚV er um að ræða lífsýni úr öðrum karlmanni en hinum látna sem fundust á hnífi sem er meðal rannsóknargagna. Samkvæmt heimildum Vísis voru miklir áverkar á hálsi hins látna sem óljóst var hvort hann hefði veitt sér sjálfur eða einhver annar verið þar á ferðinni. RÚV segir hinn grunaða hafa verið með minniháttar áverka á sér en félagarnir hafi verið saman á föstudeginum helgina sem hann fannst. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að beðið sé eftir niðurstöðum úr rannsóknum á gögnum sem lögregla hefur undir höndum. Hún geti ekki tjáð sig frekar um málið. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot.
Lögreglumál Kópavogur Dularfullt mannslát við Skjólbraut í Kópavogi Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira