Gott íslenskt kvöld og Magdeburg taplaust á toppnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2025 21:18 Gísli Þorgeir Kristjánsson var mjög öflugur í fyrri hálfleiknum i kvöld. Getty/Ruben De La Rosa Magdeburg hélt sigurgöngu sinni áfram í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld með átta marka sigri á heimavelli sínum.
Magdeburg vann 40-32 sigur á ungverska félaginu PICK Szeged í Íslendingaslag. Íslensku landsliðsmennirnir voru áberandi hjá báðum liðum. Magdeburg hefur unnið alla tíu leiki sína í Meistaradeildinni í vetur en Szeged er með fimm sigra í fjórða sæti riðilsins. Szeged komst í 3-0 en Magdeburg komst fyrst yfir í 6-5 og leit ekki til baka eftir það. Þýska liðið var 19-13 yfir í hálfleik. Þýsku Evrópumeistararnir voru síðan með öll tök á leiknum í seinni hálfleik. Gísli Þorgeir Kristjánsson (5) og Ómar Ingi Magnússon (3) voru með átta af þessum nítján mörkum Magdeburg í fyrri hálfleiknum og Janus var með þrjú mörk í hálfleiknum. Gísli og Ómar bættu við einu marki hvor í seinni hálfleik og skoruðu því tíu mörk saman en Janus Daði endaði með fjögur mörk í leiknum. Gísli var einnig með þrjár stoðsendingar og átti því alls þátt í níu mörkum. Ómar Ingi gaf einnig þrjár stoðsendingar. Íslensku mörkin voru alls sextán í kvöld því Elvar Örn Jónsson skoraði tvö fyrir Magdeburg. Elvar var einnig með tvær stoðsendingar.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Sport „Allir hjá Manchester United elska hann“ Enski boltinn Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Fleiri fréttir Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Fá Egypta í Höllina fyrir HM og heimsækja þá líka Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Sjáðu markasýningu Viggós í dag Á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Haukur þriðji tíu marka maður Íslands í þýsku deildinni í dag Uppgjör: Svartfjallaland - Ísland 33-24 | Hér varð hrun Sjá meira