„Það er búið að vera steinpakkað“ Agnar Már Másson skrifar 26. nóvember 2025 17:28 Rosemary, sérfræðingur á bráðamóttökunni, bendir fólki á að fara varlega í hálunni. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Bráðasérfræðingur mælir með notkun mannbrodda í óveðrinu á morgun, fimmtudag, en mikið álag hefur verið á bráðamóttökunni vegna hálkuslysa í dag. Hún biðlar til fólks að gefa sér tíma áður en það heldur af stað í vinuna á morgun. „
Það er búið að vera ansi mikið að gera,“ segir Rosemary Jones bráðasérfræðingur í samtali við Vísi um ástandið á bráðamóttökunni. Hún segir að hið minnsta tuttugu hálkuslys hafi verið skráð á bráðamóttökunni, en tilfellin séu í raun fleiri þar sem hálkuslys séu oft ekki endilega skráð sem slík í kerfi spítalans þó að þau séu það. Hálkuslys á höfuðborgarsvæðinu setja aukið álag á bráðamóttökuna.Vísir/Vilhelm Samkvæmt rauntímaupplýsingum í Landspítalaappinu eru um 69 manns á bráðamóttöku í Fossvogi þegar þetta er skrifað upp úr klukkan 17 í dag. Þá hafa 139 komið við á bráðamóttökunni síðustu 24 klukkustundirnar, sem er 26 fleiri en í gær. Með öðrum orðum: „Það er búið að vera steinpakkað,“ bætir Rosemary við, en hún er nýsjálensk að uppruna. Auk þess nefnir hún að löng bið hafi verið á Læknavaktinni í dag, um 5 til 6 klukkustundir. Gefðu þér tíma í fyrramálið Veðrið hefur þó verið með rólegara móti í dag en á morgun mega íbúar á Suðaustur- og Austurlandi aftur á móti búast við miklu hvassviðri og snjókomu og læknirinn biðlar til fólks að fara varlega. „Við viljum endilega hvetja fólk til að fara varlega og gefa sér tíma í að komast í vinnuna,“ segir Maryjane. Hún biðlar til fólks að vera ekki að drífa sig úr húsi, þannig renni maður og detti. „Og endilega nota mannbrodda,“ bætir hún við. Að lokum bendir hún landsmönnum á að hringja í síma 1700 ef þeir vita ekki hvert þeir eiga að leita.
Veður Landspítalinn Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira