Sólveig Kolbrún og Harpa Björg til Iðunnar Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2025 10:06 Sólveig Kolbrún Pálsdóttir og Harpa Björg Guðfinnsdóttir. Iðan Harpa Björg Guðfinnsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri þróunar þekkingar hjá Iðunni fræðslusetri og þá hefur Sólveig Kolbrún Pálsdóttir verið ráðin deildarstjóri markaðs- og sölumála.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iðunni fræðslusetri. Þar segir að Harpa muni leiða teymi leiðtoga Iðunnar, sem þrói fræðslu fyrir þær iðngreinar sem Iðan þjónusti og vinni að alþjóðaverkefnum. „Harpa kemur til Iðunnar frá Reykjavík Sightseeing þar sem hún var forstöðumaður mannauðssviðs frá árinu 2023. Áður starfaði Harpa í 4 ár sem mannauðsráðgjafi á menntasviði Kópavogsbæjar og samtals í 12 ár sem fræðslustjóri í álverum, hjá bæði Rio Tinto og Norðurári, auk þess sem hún var um árabil stundakennari og leiðbeinandi lokaritgerða samhliða öðrum störfum. Harpa er menntaður grunnskólakennari og með MA gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Sólveig stýrir markaðs- og sölumálum félagsins. Hún kemur til Iðunnar frá Ljósinu, þar sem hún markaðs- og kynningarstjóri í 7 ár. Áður starfaði Sólveig í 10 ár hjá Iceland Travel, m.a. sem sérfræðingur í markaðsmálum. Sólveig er með M.Sc. gráðu í markaðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og B.Sc. í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Vilborgu Helgu Harðardóttur, framkvædastjóra Iðunnar, að hún sé afar ánægð að hafa fengið Hörpu og Sólveigu til liðs við Iðuna fræðslusetur. „Þær búa yfir víðtækri reynslu og sterkri leiðtogahæfni sem mun nýtast vel við að efla enn frekar starfsemi og ásýnd Iðunnar sem leiðandi fræðsluseturs fyrir iðngreinar,“ segir Vilborg Helga. Um Iðuna segir að það um sé að ræða leiðandi fræðslusetur í iðnaði og þjónustar bílgreinar, bygginga- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar, matvæla- og veitingagreinar og prent- og miðlunargreinar.
Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira