Endaði á ljósastaur eftir flótta undan lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 22. nóvember 2025 07:29 Átta gistu í fangageymslu eftir nóttina samkvæmt dagbók lögreglunnar. Vísir/Ívar Fannar Maður neitaði að verða við skipunum lögregluþjóna um að stöðva bíl sinn í Reykjavík í gærkvöldi. Við það hófst eftirför sem endaði skömmu síðar þegar maðurinn keyrði á ljósastaur.
Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi slasast þegar bíllinn endaði á ljósastaurnum en ekki segir hvort það hafi verið alvarlegt. Hann mun hafa verið fluttur á slysadeild í kjölfarið. Alls voru 69 mál skráð í kerfi lögreglunnar frá fimm í gærkvöldi til fimm í morgun og gistu átta manns í fangaklefa í nótt. Á meðal verkefna lögreglu voru nokkur heimilisofbeldismál og ökumenn undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá var tilkynnt um tvo menn fara inn á lokað svæði við verslunarkjarna í Reykjavík. Lögregluþjónar fundu þá seinna á efstu æðum og var þar um að ræða sautján og átján ára drengi. Þeir sögðust hafa farið inn á svæðið til að bjarga ketti sem rataði þangað inn og voru þeir með kött í höndunum. Sautján ára drengnum var ekið heim til sín en hinn átján ára og kötturinn fengu að fara á vettvangi. Lögregluþjónar handtóku einnig mann sem neitaði að greiða fyrir leigubíl. Sá var mjög ölvaður og streittist á móti lögregluþjónum. Hann endaði í fangaklefa, þar sem hann er sagður hafa reynt að bíta lögregluþjóna. Lögreglan hefur til rannsóknar mál þar sem múrsteini var kastað inn um rúðu á útidyrahurð í Garðabæ.
Lögreglumál Næturlíf Umferðaröryggi Reykjavík Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira